veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hvatninguna og vona að ég geti staðið undir því. Ég nefni umhverfismálin og held að við höfum stundum tilhneigingu til að halda að þau mál séu í grunninn samstöðumál. Þar koma öðruvísi núningsfletir. Við getum t.d. rætt um skuldbindingar Íslands varðandi verndun vistkerfa og svæða í hafi. Það hefur ekki verið einfalt, er býsna flókin umræða og tengist líka veiðarfærum og nýtingu hafsvæða. Umhverfismálin snúast því líka um hvað við gerum á grunnslóð, hvað við gerum utar, hvað við gerum með umræðuna um brottkast og eftirlit o.s.frv. Þetta eru líka pólitísk mál og hafa verið það. Það breytir því ekki að ég er algerlega sammála hv. þingmanni um að stóru átakalínurnar hafa verið í gegnum tíðina, og við horfum ekkert fram hjá því, með hvaða hætti við tryggjum að greitt sé fyrir afnot af auðlindinni.