153. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2022.

veiðigjald.

490. mál
[12:29]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst vil ég segja að lögin um hvata til fjárfestinga frá apríl 2021 áttu við um töluliði 1–4 í 37. gr. tekjuskattslaga. 1. gr. fjallar um skip, kannski hefðum við átt að undanskilja hana en við gerðum það ekki. Lögin fjölluðu um svo margt annað en þetta og við töldum hér í þessum sal — enginn greiddi atkvæði gegn þessu — að þau myndu hafa góð áhrif. Það hefur þó sýnt sig að þau eru túlkuð með þeim hætti að ívilnanir séu ekki bara fyrir þær útgerðir sem fjárfesta í skipum heldur fyrir allar útgerðir sem greiða veiðigjald. Að mínu mati er það ekki rétt túlkun á lögunum.

Ég hef oft talað um að það þurfi bara pólitískan vilja til þess að breyta fiskveiðistjórnarkerfinu okkar. Um það ríkir ekki sátt, það er bara þannig. Samfélagsleg sátt ríkir ekki um þetta kerfi, um hvernig farið er með auðlindina okkar. Það hefur verið gagnrýnt að kerfið er lokað og nýliðun nánast ómöguleg. Ákvörðun á veiðigjaldi er líka undarleg, svolítið eins og stjórnmálamenn reki puttann upp í loftið og segi: það á að vera þetta, í stað þess að leyfa markaðnum að ráða eins og við höfum talað um í Samfylkingunni.

Síðan er annað sem er alvarlegt og það er brottkastið sem stundað er í stórum stíl og vigtunarsvindl. Fiskistofa hefur í hvoru tveggja þessara atriða talað um (Forseti hringir.) skipulagða glæpastarfsemi þegar kemur að fiskveiðiauðlindinni.