veiðigjald.
Forseti. Já, þetta er áhugavert. Þetta hlýtur að vera vísbending um hversu flókið kerfið er. Það er það sama með þetta mál sem ég var að rekja í ræðu minni. Við erum að horfa á almannatryggingakerfi sem er búið að fá svo mikið af plástrum og viðbótum, alltaf verið að plástra einhverjar breytingar og setja ný og ný lög og þetta er orðið svo flókið að það veit enginn almennilega hverjar afleiðingarnar verða þegar farið er í einhverjar smávægilegar lagabreytingar, þær geta haft mun meiri áhrif en fólk áttaði sig á. Við erum að horfa upp á það sama með fiskveiðistjórnarkerfið. Það er kominn tími á að endurskoða þetta og það er kominn tími á að gera það með það í huga að þetta er sameiginleg auðlind okkar og við þurfum að tryggja að það sé réttlátt hvernig þessu er deilt út, það sé réttlát gjaldtaka af þessari sameiginlegu auðlind. Kerfið má ekki vera svona ofboðslega flókið. Það verður oft þannig að það er í hag þeirra sem eru fjársterkastir að nýta sér glufur í þannig flóknum kerfum. Það er kominn tími á endurskoðun og mér finnst þetta mál sýna okkur að við þurfum að fara að skoða það. Ég vona svo innilega að hæstv. matvælaráðherra sé einmitt með það í skoðun og komi með einhverjar góðar og flottar kerfisbreytingar fyrir okkur á kjörtímabilinu.