veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og svarið er: Jú. Flokkur fólksins hefur talað um fyrningarleiðir. Flokkur fólksins hefur talað um markaðsleiðina. Við erum að reyna að gera allt og teikna upp raunhæft kerfi þar sem útgerðum er ekki mismunað. Við verðum að gera okkur grein fyrir því sem við þurfum að varast þegar við erum að tala um uppboðsleið og annað slíkt, þ.e. að ekki verði samráð hjá peningaöflunum þannig að þau geti hrifsað til sín nánast allt í boðinu. Það er okkar í þinginu að útfæra það. Við gætum alveg tryggt að svoleiðis yrði það ekki en að sjálfsögðu sáum við líka fyrir okkur að vera með ákveðna fyrningu á aflanum sem skipin eru greinilega orðin áskrifendur að og eru í raun komin með fiskinn okkar sem eign. Þau virðast geta keypt 1 tonn og geta veitt sama tonnið til eilífðar, eina og sama tonnið. Ég vil einfaldlega að þau fái bara einu sinni að veiða tonnið og þurfi síðan að kaupa aðgang að því aftur, af því að við eigum tonnið. En jú, það þarf að taka þetta kerfi, eins og kerfi Tryggingastofnunar, og hreinsa það gjörsamlega, núlla út og byrja upp á nýtt. Þar er ég hjartanlega sammála.