veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir að mæla hér fyrir breytingum á lögum um veiðigjald. Það fer kannski ekki mikið fyrir þessu máli í umræðunni og það hafði stuttan aðdraganda en hér er engu að síður um mjög mikilvægt mál að ræða. Markmiðið með þessu frumvarpi er að draga úr sveiflum á upphæðum veiðigjalds og eru þessar sveiflur einkum til komnar vegna bráðabirgðaákvæðis um fyrningar í lögum um tekjuskatt, sem var liður í aðgerðum vegna Covid-19, eins og hefur komið margoft fram í ræðum hv. þingmanna um þetta mál. Þetta er bráðabirgðaákvæði í tekjuskattslögum og var mikilvægt til að mæta efnahagslegum áhrifum af völdum kórónuveirufaraldursins og til að veita öfluga viðspyrnu gegn áhrifum hans. Það gerðum við á mun fleiri sviðum en bara þeim sem snúa að sjávarútvegi, svo það sé sagt hér. Mönnum hefur legið hátt rómur um marga liði hvað þetta varðar en við skulum líka hafa það í huga að það var tilgangur með þessu á sínum tíma.
Við sjáum það nú þegar frá líður að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálunum skiluðu góðum árangri. Í haust kom það í ljós að þetta bráðabirgðaákvæði kæmi til með að hafa veruleg áhrif á veiðigjöld til lækkunar og því þyrfti að gera lagfæringu á 5. gr. laga um veiðigjald því til samræmis. Ef þessar breytingar verða ekki gerðar má gera ráð fyrir því að veiðigjöld fyrir næsta ár lækki um 2,5–3 milljarða. Hér er þó ekki verið að ræða um varanlega lækkun heldur tilfærslu í tíma en engu að síður er þetta verulega há fjárhæð og því mikilvægt að afturkalla þessa heimild til aukafyrningar á reiknistofni veiðigjalda. Nái þetta frumvarp fram að ganga hér í þessum sal er gert ráð fyrir að veiðigjöld næsta árs verði 9,5 milljarðar í stað þess að vera 7 milljarðar og þar af er sameiginlegt veiðigjald af loðnu, síld, makríl og kolmunna 2,3 milljarðar í stað þess að verða rétt um 0,7 milljarða kr. ef ekkert væri að gert. Það er mikilsvert að það hafi náðst sátt um þetta mál milli hagaðila þrátt fyrir stuttan aðdraganda en það kemur fram í greinargerð að fyrir utan fjármála- og efnahagsráðuneyti og Skattinn eru Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sem og Landssamband smábátaeigenda sammála um að skattalegar aukafyrningar hafi skapað meiri sveiflur í reiknistofni milli ára og að þessar sveiflur séu óheppilegar. Hér er einfaldlega verið að gera þessa leiðréttingu til hagsbóta fyrir alla aðila. Mikilvægt er að lög um veiðigjald þjóni markmiðum sínum, þ.e. að greiða tilskilinn arð af fiskveiðiauðlindinni til þjóðarinnar og hafa samhliða því stöðugleika í ákvörðunum um veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að þessari vinnu lokinni að við sameinumst um það að þeir sem nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar greiði sanngjarnt gjald fyrir nýtingu auðlindarinnar. Ég verð að segja að þessar reikningskúnstir sem eru notaðar í kringum það að ákvarða veiðigjaldið eru ógagnsæjar og þær eru ekki til þess fallnar að skapa traust til þeirra sem nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar. En ég hef fulla trú á því að við sem störfum hér í þessum sal náum að koma þessu frumvarpi hratt og örugglega með góðri vinnu í gegnum þingið fyrir 1. desember.