153. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2022.

veiðigjald.

490. mál
[13:46]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir sína ágætu ræðu, hann kom inn á marga áhugaverða punkta. Hv. þingmaður kom inn á að hugsanlega gætu skaðabætur fylgt í kjölfarið. En eins og kemur fram í frumvarpinu þá er þarna talað um að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafi komið að þessu og veitt ákveðna umsögn þannig að það væri gott að fá frekari útskýringar á því hvers vegna hv. þingmaður telur að svo geti farið að íslenska ríkið yrði skaðabótaskylt.

Mig langar að koma inn á að það er fullmikil einföldun að taka bara arð útgerðarinnar og bera síðan saman við útgjöld ríkisins í þeim stofnunum sem ríkið er að reka, eins og Hafrannsóknastofnun og fleiri góðar stofnanir. Við verðum alltaf að hafa inni í jöfnunni þegar við tölum um ákveðna atvinnugrein að atvinnugreinin borgar ákveðnum aðilum laun sem borga síðan skatta af sínum launum. Við verðum að horfa heildstætt á allan rekstur, ekki bara eina breytu í rekstrinum heldur að horfa heildstætt á það í öllum rekstri hjá okkur. Við greiðum skatta, hver og einn einstaklingur. Hann rennur í sameiginlega sjóði til þess að reka hér allar þær stofnanir sem ríkið hefur á sinni hendi. Við verðum alltaf að hafa það líka í huga að ekki er hægt að taka bara einn þátt út af fyrir sig og segja: Jú, hagnaður ríkisins á þessu ári er sirka 500 milljónir af sjávarútvegi.