veiðigjald.
Forseti. Ég taldi hér til áðan 1,7 milljarða af Landhelgisgæslunni. Það er ekki allur rekstur Landhelgisgæslunnar. Það er mat Landhelgisgæslunnar á því hver kostnaðurinn er við eftirlit vegna fiskveiðiauðlindarinnar. Það er mat Landhelgisgæslunnar á því sem hún þarf að standa straum af vegna sjávarútvegsauðlindarinnar. Ég endurtek: Þetta er ekki öll Landhelgisgæslan, bara sá kostnaður sem fylgir eftirliti með veiðum o.s.frv. Ég er með þetta mjög einangrað. Útgerðin fær að taka kostnaðinn, m.a.s. með auknum afskriftum umfram það sem er eðlilegt, sérstaklega miðað við það sem var gert vegna þessa frumvarps. Ef við reynum að telja til öll atriði, eins og útgerðin fær að gera vegna þess að hún sækir fisk úr sjónum, þá er þetta skiptingin. Ef reynt er að flækja málið með því að telja til afleidd störf og hvað sé að gerast í vinnslu í landi o.s.frv. þá þurfum við líka að reyna að telja til öll þessi atriði varðandi heilbrigðiskerfið, samgöngukerfið o.s.frv. og kostnaðinn sem leggst þar ofan á vegna aukins álags á t.d. vegasamgöngur. Þá erum við bara komin út í mjög miklar flækjur og rifrildi um það hvað er hægt að telja til og hvað ekki. Það er það sem útgerðin hefur mestan áhuga á, SFS hefur rosalegan áhuga á að þvæla umræðuna þannig, en hún er í alvörunni einfaldari. Kostnaðurinn við það að sækja fiskinn úr sjónum, arðurinn af því að sækja fiskinn úr sjónum, hlutdeild veiðigjaldsins af því og kostnaður ríkisins við að reka það sem kemur sjávarauðlindinni við — þetta er eins afmarkað og hægt er að hafa það. Það er ekkert ómálefnalegt að tala bara um það og gera samanburð þar á milli.