153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

flokkun vega og snjómokstur.

[15:38]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Sú almenna viðhorfsbreyting virðist hafa átt sér stað að fólk tekur því alvarlegar að keyra í vonskuveðrum og oft á tíðum erfiðu færi. Þetta er góð þróun og líklega hluti af þeim breytingum sem þar hefur orðið á, aukin umferð með fjölgun ferðamanna á síðustu árum. Svo höfum við sannarlega tekið upp betri og skilvirkari leiðir til að gera viðvart um veður og veglokanir.

Víða úti um land búum við að fleiri en einni leið milli staða. Þegar ófært er á einum stað má finna aðra leið. Þetta á oft við um tengi- og stofnvegi sem tengja gjarnan saman sveitarfélög. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að mokstur á slíkum vegum er iðulega minni en á þjóðvegum. Það má vissulega hafa samúð með þeim sjónarmiðum sem liggja þar að baki. Það er þó þannig að vegstæði stofn- og tengivega geta verið ákjósanlegri með tilliti til snjóþyngsla og vegalengda sem hvort tveggja ætti að vega þungt í flokkun. Nú þegar sameinuðum sveitarfélögum fjölgar í æ víðfeðmari og fjölmennari atvinnusóknarsvæði er ljóst að einhverrar endurskoðunar er þörf. Ég nefni hér t.d. Öxi sem styttir leiðina á milli byggðakjarna í Múlaþingi um 70 km, frá Djúpavogi inn á Egilsstaði, en sætir lokun vegna snjóa þrátt fyrir að talið sé að halda megi veginum opnum mun lengur en gert er með tilheyrandi aksturssparnaði í vetrarfærð fyrir íbúa í sameinuðu Múlaþingi. Það er mikilvægur hvati við sameiningar að samgöngur fylgi með. Þá hefur aukin atvinnuuppbygging í kringum fiskeldi valdið aukinni þungaumferð um fjallvegi að vetrarlagi bæði á Vestfjörðum og á Norðausturlandi, þar sem vegir voru líklega á sínum tíma upp á sitt versta. Það er mikilvægt að tryggja öryggi, ekki síst stórra flutningabíla sem þurfa að komast leiðar sinnar, t.d. í Norrænu. Síðan má ekki gleyma að miklu hefur verið kostað til vegna Demantshringsins og því afar mikilvægt að hafa hann opinn, bæði fyrir ferðamenn og, eins og ég sagði, ekki síður atvinnustarfsemi. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji ástæðu til að breyta flokkun vega með tilliti til mokstursreglna.