flokkun vega og snjómokstur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Varðandi Öxi þá þekki ég það bara úr Ólafsfjarðarmúla að það eru kannski einhverjir tilteknir staðir sem lokast en ekki endilega allur vegurinn. Í svona góðri tíð eins og verið hefur þá hlýtur að vera til einhver auka peningur hjá Vegagerðinni í einmitt þetta. Kannski fáum við skellinn — eins og maðurinn minn segir gjarnan að hann eigi talsvert inni norðan við sig — eftir áramótin. Hæstv. ráðherra þekkir það að þegar við erum að tala um atvinnustarfsemi, ekki síst í Svarfaðardal þar sem eru 12 kúabú, að ekki er mokað nógu ört. Þetta á víða við. Síðan verð ég að koma því áleiðis til ráðherra og spyrja hann um afstöðu til helmingamoksturs. Það kom víða fram í kjördæmavikunni hvað sveitarfélögin telji það gamaldags nálgun að sum sveitarfélög búi við að vera með helmingamokstur. Því spyr ég ráðherrann líka um afstöðu hans til þess og hvort við ættum að horfa til þess að breyta því.