153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[15:46]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Herra forseti. Umræðan um veiðileyfagjöld fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind þjóðarinnar gnæfir yfir aðra þætti þessarar undirstöðuatvinnugreinar í umræðunni, eðlilega. Mig langar hér í dag til að ræða tækifæri Íslands á erlendum mörkuðum. Ég lagði fyrir hæstv. matvælaráðherra fjórar spurningar en meginspurningin er einfaldlega þessi: Hvernig getum við aukið verðmæti fyrir íslenskan fisk á erlendum mörkuðum?

Fyrsta spurningin varðar fisk sem fluttur er óunninn úr landi, svokallaðan gámafisk, og hvaða afleiðingar það hefur á vörumerkið Ísland erlendis að fiskurinn er ekki unninn hér heima áður en hann fer út á erlenda markaði, að við flytjum fiskinn heilan og óunninn út. Hvaða afleiðingar hefur þetta á samkeppnisstöðu fiskvinnslna hér heima og hvaða þýðingu hefur það fyrir gæðin? Í lok síðasta árs fóru um 50.000 tonn af óunnum fiski úr landi. Það jafngildir um 2.000 gámum af fiski. Stundum er fiskinum staflað í 200–300 kílóa hrúgu í fiskikari. Ég spyr mig hvort sú meðferð gefi til kynna að um lúxusvöru sé að ræða. Laxeldi hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og nánast allur lax er fluttur óunninn út með flugi.

Það er gæðamál að hráefnið sé unnið hér heima, það er atvinnumál, það er byggðamál en það er líka umhverfis- og loftslagsmál. Þess vegna á það að vera metnaðarmál stjórnvalda að meðferð sjávarafurða sé þannig að staða íslenskra sjávarafurða á mörkuðum haldist áfram sterk.

Könnun Íslandsstofu frá 2020 er áhugaverð. Hún sýnir að neytendur erlendis búa ekki yfir þekkingu um að íslenskar sjávarafurðir séu sérstakrar gæðavörur, ekki lengur. Þróunin sést t.d. í Bretlandi þar sem um 25% elstu svarenda nefndu Ísland sem land gæðasjávaafurða og þannig viljum við hafa það. En þegar við skoðum hlutfall fólks á aldrinum 20–35 ára þá var þetta hlutfall komið niður í 5%. Það er vísbending um að mikilvæg sérstaða eða þekking á sérstöðunni sé að glatast á markaði. Könnun Íslandsstofu sýndi líka að íslenskir útflytjendur hafa náð mjög góðum árangri í markaðssetningu til dreifingar og til söluaðila en neytandinn sem kaupir fiskinn tengir Ísland hins vegar ekki lengur nægilega sterkt við gæðafisk. Hér eru þess vegna mikil tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg. Ég hefði áhuga á að heyra hver viðbrögð hæstv. ráðherra eru hvað þessa stöðu varðar, þ.e. þekkingu neytenda á erlendum mörkuðum um gæði íslensks fisks. Noregur hefur forskot á Ísland hvað varðar þekkingu neytenda. Á mörkuðum í Bretlandi er norskur fiskur auglýstur dýrari en sá íslenski og menn vilja meina að markaðssetning hafi skilað þessum árangri. Fjárfesting í markaðssetningu íslenskra sjávarafurða hefur á sama tíma verið fremur lítil.

Lykilspurningin í þessu sambandi er þá: Hvernig aukum við verðmæti íslenskra sjávarafurða á erlendum mörkuðum? Svarið hlýtur að vera: Með því að fá sem hæst verð fyrir fiskinn. Til þess þarf tvennt, annars vegar að við verjum gæðin en hins vegar að við fjárfestum í markaðssetningu, að neytendum erlendis sé sagt frá gæðum og sérstöðu íslenskra sjávarafurða. Villtur íslenskur þorskur er t.d. veiddur af hátæknivæddum togurum eða dagróðrarbátum. Hann er verkaður þannig að nýting aflans er 80–90% og oftast tekst mjög vel að koma honum ferskum á áfangastað. Þessi þorskur á að seljast sem lúxusvara á alþjóðlegum mörkuðum en engu að síður fáum við ekki alltaf hæsta verð fyrir okkar gæðavöru, villta íslenska fiskinn, þrátt fyrir að við séum að selja gæðavöru en ekki fisk úr stórtæku fiskeldi eins og býðst á stórum mörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Sjávarútvegurinn á Íslandi er tengdur öflugu neti dreifiaðila beggja vegna Atlantshafsins sem þekkja gæðin vel en þessir aðilar hafa kannski ekki sérstakan hag af því að halda uppi merkjum íslensks sjávarútvegs gagnvart neytendum.

Undanfarin ár hefur sjávarútvegurinn fjárfest af krafti í veiðum og vinnslu og það var auðvitað vegna þess að til staðar var uppsöfnuð þörf á að endurnýja flotann. En ætti næsta fjárfestingarátak ekki að vera í markaðssetningu annars vegar og í því að verja gæðin? Ég verð að segja að ég set spurningarmerki við gámafiskinn í því sambandi. Hvaða þýðingu hefur sú staðreynd að afli sé fluttur úr landi óunninn? Hvaða áhrif hefur það á gæði vörunnar? Hver eru síðan tækifæri íslensks sjávarútvegs á að skapa sér sérstöðu? Eru gæðin ekki okkar sterkasta svar þar? Ég minni í því sambandi á sögu Icelandic-vörumerkisins sem selt var úr landi, sem ætti að vera okkur víti til varnaðar. Afleiðingin varð sú að uppþíddur hvítur fiskur hvaðanæva að var seldur sem íslenskur.

Tækifærin til að sækja fram eru svo sannarlega til staðar en það þarf að tryggja gæði og það þarf að fjárfesta í markaðssetningu þannig að verð sé í samræmi við gæði. Þeim sem treyst er fyrir auðlindinni ber skylda til að verja gæði og hámarka verðmæti í þágu sameiginlegra hagsmuna okkar allra.