153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[15:52]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir frumkvæðið að þessari umræðu sem er sannarlega mikilvæg og er gott að fá tækifæri til að taka hana. Þegar öllu er á botninn hvolft er kjarni málsins þau verðmæti sem skila sér fyrir fiskveiðiauðlindina.

Af því að hv. þingmaður byrjaði á því að tala út frá óunninni afurð sem við seljum frá landinu, þá vil ég bara segja það skýrt að ég er almennt þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að vinna sem mest af fiski hér á landi. Ýmis rök eru fyrir því, m.a. er mikilvægt að hér sé nægt hráefni fyrir vinnslur og að sem mestur virðisauki sé eftir þegar aflinn er unninn hér. Við vinnu í landi og vinnslu hér þá verða til hráefni sem eru nýtt áfram til ýmissar virðisaukandi starfsemi. Kollagenvinnsla er eitt af því sem hefur verið nefnt. Mér finnst þetta skipta máli sem grundvallarafstaða fyrir okkur sem leggjum upp úr því sem samfélag að nýta þessa auðlind sem og aðrar með sjálfbærum hætti og með gæði að leiðarljósi. Þá er fullvinnsla líka markmið til þess að sinna hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins þarna eins og annars staðar.

Íslenskur sjávarútvegur og fiskeldi hefur auðvitað mjög mörg tækifæri til að skapa sér sérstöðu til viðbótar við þá sérstöðu sem við höfum þegar séð. Mín skoðun er sú að helstu sóknarfærin séu í gegnum ábyrga umgengni við auðlindina og að hún sé leiðarstef í markaðssetningu á íslensku sjávarfangi, en auðvitað líka afurðum fiskeldis. Ég held að mikil tækifæri séu í því að nýta rekjanleika íslenskra sjávarafurða til að sækja gott verð á markaði, m.a. með tilliti til kolefnisspors sem sífellt meiri eftirspurn er eftir, eins og maður finnur fyrir í loftslagsumræðunni. Þetta er auðvitað hafið hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum. Þau tækifæri munu bara aukast við aukinn árangur sjávarútvegsins í loftslagsmálum. Þar höfum við ákveðið forskot.

Einnig er mikilvæg spurning um hlutverk stjórnvalda í markaðssetningu. Við beitum okkur fyrir bættu markaðsaðgengi fyrst og fremst í gegnum það að tryggja orðspor, að beita okkur fyrir gæðum, sjálfbærri nýtingu o.s.frv. Nákvæmlega hvernig eigi að selja fisk er örugglega verkefni sem aðrir geta leyst betur. Við erum með, eins og hv. þingmaður veit, umfangsmikla stefnumótun í gangi á sviði sjávarútvegs undir formerkjum Auðlindarinnar okkar. Þar er m.a. rætt um verðmætasköpun og tækifæri í sjávarútvegi þar sem við freistum þess í raun og veru að halda utan um tækifærin í sérstökum sérfræðingahópi, einmitt til þess að við getum horft til þess með aðgreindum og aðskildum hætti án þess að við séum beinlínis að hugsa um fjármagnið sem rennur til samfélagsins. Við erum líka að vinna að stefnumótun í fiskeldi þar sem fyrirtækið Boston Consulting Group skilar ítarlegri skýrslu um framtíðartækifæri og áskoranir og það mun koma til mín innan fárra vikna.

Undir þessari stefnumótun, hvorri um sig, er mjög mikið verið að horfa til tækifæra fyrir íslenskt samfélag og fyrir þessar greinar. Ég staldraði sérstaklega við það þegar ég kom til Færeyja og kynnti mér umhverfi fiskeldis þar, sem hefur fest sig betur í sessi en á Íslandi, að þar er verið að horfa með miklu ríkari hætti en við gerum hér til þess að fullvinna fiskinn áður en hann er seldur út. Því fer hann frá Færeyjum í neytendapakkningum. Ég held að við getum horft mikið til Færeyinga í þessu sem öðru. Ég vonast til að umræðan verði mjög góð og þakka hv. þingmanni fyrir góða umræðu.