Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.
Herra forseti. Áhersluatriðin í þessari umræðu eru mjög mikilvæg og þyrfti lengri tíma til umfjöllunar en hér er gefinn. Samkeppniseftirlitið gaf út álit fyrir um tíu árum síðan um samkeppnishæfni fiskvinnsla hér á landi sem ekki halda á veiðiheimildum við þær fiskvinnslur sem halda á veiðiheimildum. Í álitinu var bent á að í aðstöðumuninum sé hvati fyrir útgerðir sem stunda bæði veiðar og vinnslu til að gefa upp sem lægst verð á afla í innri viðskiptum milli útgerðarhluta og vinnsluhluta fyrirtækisins. Þar eru talin upp fjögur atriði til bóta sem enn eru í góðu gildi: Að tryggja að innri viðskipti þessara fyrirtækja sé eins og í viðskiptum á frjálsum markaði en ekki undirverðlagning, að tryggja að hafnarsjóðir landsins verði ekki af tekjum vegna þessarar undirverðlagningar, að tryggja að útgerðarmenn komi ekki að verðmyndun hjá Verðlagsstofu, að frelsi til úthlutunar veiðiheimilda verði aukið, t.d. til fiskvinnsla til að bæta aðstöðumun. Við þessi fjögur atriði má bæta áhrifum á kjör sjómanna.
Samkeppnisstaða gagnvart erlendum samkeppnisaðilum er annars eðlis. Meðferð á afla, rekjanleiki, umgengni við auðlindina, þar með talið brottkast, skiptir miklu máli fyrir orðspor á markaði. Útflutningur á óunnum afla og kaup erlendra aðila á fiskmörkuðum til vinnslu erlendis er vandamál sem horfast þarf í augu við. Íslensk stjórnvöld verða að finna leiðir til að hvetja til innlendrar framleiðslu. Íslensk útgerðarfyrirtæki flytja sjálf um helming af þeim óunna fiski sem fluttur er úr landi og erlend fyrirtæki kaupa hinn helminginn á fiskmarkaði. Kvótalausar fiskvinnslur sem treysta á fiskmarkaði verða undir í samkeppninni og störf og þekking tapast úr sjávarbyggðunum. Nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi getur ekki orðið nema tryggt sé að afli til vinnslu sé til sölu hér innan lands.