153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[16:00]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Varðandi stöðu íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu þá er mikilvægt að fiskur fari á markað þannig að fiskvinnslur geti boðið í sjávarafla sem berst að landi. Ríkisvaldið þarf að stuðla að því að sem mest af sjávarafla fari á markað til að tryggja aðgang sjálfstæðra fiskvinnsla til vinnslu. Það er einungis þannig sem samkeppnisumhverfi íslenskra fiskvinnsla verður tryggt. Það er þannig sem við komum í veg fyrir að útflutningur óunninna sjávarafurða aukist. Allar íslenskar fiskvinnslur verða að hafa aðgang að sjávarafla til fullvinnslu á markaði. Ljóst er að hin samþætta virðiskeðja útgerðar og fiskvinnslu, veiða og vinnslu virkar ekki sem skyldi og mætti halda langa ræðu um hana. Margir segja að hún bjóði upp á misnotkun, sérstaklega í gegnum sölufélög erlendis, hún komi í veg fyrir frjálsa verðmyndun sjávarafla á markaði o.s.frv. Núverandi samþætt virðiskeðja gerir því ómögulegt að innheimta veiðileyfagjald með nokkurri sanngirni. Málið er að það ætti að skylda að a.m.k. 30% af afla hverrar útgerðar fari á markað til þess að tryggja að þeir fái fiskinn til vinnslu sem geta fengið best verð fyrir aflann. Þar koma t.d. strandveiðar inn í. Það er tryggt að afli og sjávarafurðir frá strandveiðum fari beint á markað. Þetta þarf að auka stórlega.

Varðandi markaðssetningu á sjávarafurðum og afurðum fiskeldis og það hvort íslenskur sjávarútvegur og fiskeldi sé að skapa sér sérstöðu, þá hefur íslenskur sjávarútvegur misst sérstöðu sína á mörkuðum. Áður var litið á íslenskt fiskmeti sem hið mesta hnossgæti erlendis. Nú er öldin önnur. Norskur eldislax er seldur á umtalsvert hærra verði auk þess sem sami lax hefur svo gott sem rutt íslenskri ferskri gæðaframleiðslu úr sjónmáli neytenda með aðstoð frá þiðnum fiski frá Noregi og Rússlandi. Þetta er hættuleg þróun. Helsta ástæða þessa er að íslenskir útflytjendur hafa ekki staðið sig nægilega vel í markaðsmálum fyrir afurðir sínar.