Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa sérstöku umræðu. Mitt innlegg í hana er kannski fyrst og fremst að rifja upp og minna á hversu mikils virði það er og hversu frábærum árangri íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa náð í að auka verðmæti sjávarafurða. Ég held að það byggist ekki síst á því að hér höfum við haft vinnslu og veiðar og beina tengingu við markaðsstarf í hávegum og það tryggir hámarksnýtingu og hámarksverðmæti sjávarafurða. Það er nefnilega svo merkilegt að það þarf ekki alltaf að haldast í hendur miklar veiðar eða stórir kvótar. Við getum líka gert mikil verðmæti úr tiltölulega litlum kvótum og það sáum við ekki síst fyrir nokkru síðan í frekar slakri loðnuvertíð. Við viljum byggja fiskstofnana upp og þess vegna stundum við ábyrgar veiðar.
Það sem mig langaði að leggja inn í þessa umræðu er að mér finnst athyglisvert hvernig við erum að sækja fram á nýjan leik á Bandaríkjamarkaði með útflutningi á sjávarafurðum. Þar hefur útflutningur á síðustu tveimur árum stóraukist og ekki síst ferskfisksútflutningur. Þar gegnir kannski fiskeldið einna stærstu hlutverki og með auknu flugi eða traustari samgöngum til Bandaríkjanna höfum við þar meiri tækifæri.
Ég hlustaði á áhugavert erindi hjá DNB-bankanum í haust þar sem rætt var um markaðsmöguleika sjávarafurða og þetta sérstaka samhengi að tryggt framboð, stöðlun, sé í raun og veru undirstaðan undir hátt verðmæti en fiskeldið hafi kannski það fram yfir að bjóða bleikan fisk og það sé í raun og veru grunnurinn að þeirri athyglisverðu staðreynd að það er sjóeldi á laxi sem tryggir hærra verð fyrir sjávarfang en veiðar á villtum tegundum.
Virðulegur forseti. Það er margt spennandi að gerast í þessum efnum og við viljum styðja það áfram.