Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.
Virðulegi forseti. Aðeins út af orðum hv. þingmanns sem talaði hér rétt áðan þá er það einfaldlega þannig að útgerðin, þessi glæsilegi íslenski sjávarútvegur, hefur sjálf neitað því að fá þennan fyrirsjáanleika. Þeir hafa ekki viljað tímabinda heimildir, t.d. til 20 eða 30 ára. Sú umræða hefur alltaf verið slegin út af borðinu af því að það er ekki pólitískur vilji innan ríkisstjórnar, innan ákveðinna flokka, til að fara þá leið sem við í Viðreisn höfum kallað eftir, að það verði skýrt hver eigi auðlindina, að það verði skýrt að réttlætið nái til almennings þegar kemur að úthlutun auðlindarinnar.
Að því sögðu er þessi umræða mjög mikilvæg. Það er gríðarlega mikilvægt að við höfum skoðun á því hvernig við markaðssetjum íslenskar sjávarafurðir. Það hlýtur að vera eitthvað að þegar við fáum ekki meira fyrir hvert kíló af villtum fiski en fæst fyrir eldislax, með fullri virðingu, hvort sem hann er norskur eða íslenskur; þetta er ekki villtur fiskur eins og þorskur eða annar fiskur sem er veiddur í íslenskri lögsögu. Ég held við hljótum að þurfa að skoða hvernig við setjum hvata í kerfið til að við getum minnkað þennan gámaútflutning, að við reynum einmitt að vinna sem mest hér heima. Við höfum sögu að segja og við megum ekki glata sögunni eins og hv. frummælandi hefur réttilega bent á. Við megum ekki glata því forskoti sem Ísland hefur sem land hreinna afurða og hreinna sjávarafurða. Það gerum við ekki nema með því að gefa verulega í. Það er ekki verið að tala um ríkisvæðingu. Það er verið að tala um að sjávarútvegurinn, í samvinnu við stjórnvöld, reyni að koma inn hvötum, reyni að verða sýnilegri og markvissari þegar kemur að markaðssetningu íslenskra sjávarafurða. Ég er sannfærð um það, eins og með landbúnaðinn, að við eigum alveg ótrúleg tækifæri fram undan ef við grípum þau og nýtum rétt í þágu íslensks almennings og íslensks sjávarútvegs.