153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[16:13]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu í dag. Hún er mjög mikilvæg og það er líka mikilvægt að sú tækniþekking og þróun sem orðið hefur við vinnslu sjávarafurða á Íslandi, þ.e. sá þáttur sem skapar mestan virðisauka, skili sér í ríkara mæli inn í slátrun og vinnslu, t.d. á eldisfiski. Það er alveg ljóst í núverandi umhverfi og stöðu í heimsmálum þar sem fiskverð, ekki síst laxverð, er í hæstu hæðum að til staðar er ákveðinn freistnivandi sem er að fyrirtækin spari sér í ríkari mæli vinnsluna hér á landi og selji fiskinn beint úr landi. Þetta er mikil óheillaþróun fyrir bæði hugvit og þekkingu okkar á fiskvinnslu.

Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði höfum lagt mikla áherslu á að innlend verðmætasköpun í sjávarútvegi sé sem mest. Af því hljótast fleiri störf og með tíð og tíma mun frekari fullvinnsla afurða leiða til nýsköpunar með aukaafurðir vegna fiskeldis líkt og þekkist í hefðbundnum sjávarútvegi. Áhersla á innlenda verðmætasköpun, störf og fullvinnslu er ekki eini mælikvarðinn á velgengni atvinnugreinar þó að þetta séu sannarlega mikilvægir þættir. Það er ljóst að fullvinnsla hér á landi lágmarkar losun kolefnis í útvegsgreinum, hvort sem er í eldi eða annars staðar. Því er mikilvægt að tryggja með öllu móti að afli af Íslandsmiðum, hvort sem er vegna laxeldis eða hefðbundinna veiða, fari ekki óunninn úr landi. Ég heyri að við tölum mörg hver í sama tóni. Það er mikilvægt að við stöndum vörð um aðgengi innlendrar fiskvinnslu að hráefni og í stefnu minnar hreyfingar segir um þessi mál, með leyfi forseta: „Innlend fiskvinnsla skal alltaf eiga þess kost að bjóða í óunninn afla áður en hann fer úr landi …“.

Þessi orð styðja við byggðafestu sem er mjög mikilvægur þáttur í umræðu um sjávarútveg. Það þarf að tryggja sjálfstæði fiskmarkaða og að þeir geti tekið við hráefni um land allt og komið því til vinnslu, ekki síst í minni sjávarbyggðum.