153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[16:16]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti.

„Koma þarf í veg fyrir að vaxandi afli af Íslandsmiðum og stór hluti framleiðslunnar í auknu fiskeldi fari óunninn úr landi. Með því eru ekki aðeins störf og virðisauki flutt úr landi, heldur er einnig ljóst að slíkur hráefnisútflutningur skilur eftir sig mikið viðbótar kolefnisspor borið saman við fullvinnslu hér heima. Beita þarf umhverfisgjöldum eða umhverfisálagi á slíkan hráefnisútflutning. Innlend fiskvinnsla skal alltaf eiga þess kost að bjóða í óunninn afla áður en hann fer úr landi, þ.e. annan afla en þann sem fer beint til vinnslu hjá sama aðila og stundar veiðarnar eða afla sem gengur beint til innlendrar vinnslu á grundvelli tengsla eða samninga.“

Þetta er texti úr stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. (Gripið fram í.) Já, hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir las einmitt eina setningu úr þessu. Nú fer flokkurinn með sjávarútvegsmál í ríkisstjórn Íslands og því er svolítið athyglisvert að ekkert af þessu skilaði sér inn í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þar er fjallað um að það þurfi að greina hitt og þetta og vissulega hefur hæstv. ráðherra sett á fót einhverja stærstu og fjölmennustu nefnd veraldarsögunnar miðað við höfðatölu til að greina þessa hluti enn þá betur. Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því.

Það væri gaman að heyra frá hæstv. ráðherra hér á eftir hvernig hún sér fyrir sér að framkvæma þessa stefnu. Ég heyri að vilji hæstv. ráðherra er að halda fiskvinnslunni innan lands o.s.frv., en það væri gaman að heyra það meira „konkret“, með leyfi forseta, hvaða ráðstafanir hæstv. ráðherra sér fyrir sér að ráðast í til að fylgja þessari stefnu eftir og hvenær megi eiga von á þessum umhverfisgjöldum á hráefnisútflutning sem eru boðuð í þessari stefnu sem ég las hér upp og hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir vitnaði líka til.