153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[16:18]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að fagna því sem fulltrúi Vinstri grænna, hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sagði hér í umræðum um mikilvægi fiskmarkaða fyrir fiskvinnslur á landsbyggðinni og þá byggðafestu sem fiskmarkaðir veita. Staðreyndin er sú að við erum sammála um margt fleira en okkur grunar þegar kemur að sjávarútvegsmálum til farsældar fyrir byggð í landinu og samfélagið í heild, og er vert að vísa líka í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða sem lýtur að byggðum landsins.

Mig langar að halda áfram út frá því sem ég minntist á í fyrri ræðu varðandi það að íslenskur sjávarútvegur hefði misst sérstöðu sína á mörkuðum og að íslenskir útflytjendur hefðu ekki staðið sig nægilega vel í markaðsmálum fyrir afurðir sínar.

Hvað er til ráða? Vert er að skoða hvað frændur vorir Norðmenn hafa gert. Fyrir 30 árum stofnuðu Norðmenn norska sjávarafurðaráðið, Norwegian Seafood Council eða Norges sjømatråd. Þeir fjármögnuðu verkefnið með gjaldi ofan á allan útflutning sjávarafurða frá landinu og tóku upp slagorðið „Seafood from Norway“. Ég veit að Íslendingar hafa líka tekið upp slagorðin „Seafood from Iceland“ og „Iceland Responsible Fisheries“, en betur má ef duga skal.

Norska sjávarafurðaráðið, Norwegian Seafood Council, er með mjög skýr markmið sem eru að auka verðmæti norskra sjávarafurða með markaðsrannsóknum, markaðsþróun, markaðsáhættugreiningu, orðsporsáhættugreiningu og mjög markvissri markaðsfræðslu. Þeir reka skrifstofur í 13 löndum sem greina markaði í 27 löndum um allan heim. Tilgangurinn er að leita að tækifærum fyrir bæði nýjar og eldri afurðir. Verkefnið er mjög skýrt: Auka vitund neytenda og koma norskum fiski í forgang hjá neytendum. Það er gert með markaðsgreiningu ásamt markaðsrannsóknum sem beinast að neytendum á skilgreindum svæðum. Ég veit að hæstv. matvælaráðherra, sem sósíalisti, er áhugakona um visku stjórnvalda og ríkisvaldsins. Hér er um ríkisstofnun að ræða og það er vert að nota (Forseti hringir.) þau úrræði sem þegar er verið að nota varðandi „Seafood from Iceland“ og það sem Íslandsstofa er að gera, og stofna (Forseti hringir.) íslenska sjávarafurðaráðið að norskri fyrirmynd til að efla það sem hér er til umræðu.