153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[16:21]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og tek undir mikilvægi samtalsins. Ég vil byrja á að nefna eitt varðandi fullyrðingu málshefjanda í spurningum sínum til ráðherra þar sem segir að tækniþróun í vinnsluaðferðum auk annarra þátta hafi breytt samkeppnisumhverfi íslenskra fiskvinnsla og þrýst mjög á aukinn útflutning á óunninni afurð frá landinu. Það ber að hafa í huga að þvert á móti hefur aukið tæknistig tryggt að fiskvinnsla sé hér á landi. Það er þó full ástæða til að vera með augun á því hvernig hlutföll óunnins afla þróast og þar má horfa til Noregs. Á undanförnum árum hefur meðalverð fyrir hvert útflutt kíló af þorski að jafnaði verið mun hærra frá Íslandi en Noregi. Ástæðan er sú að Íslendingar flytja einkum þorskafurðir úr landi sem eru að langstærstum hluta unnar heima fyrir á meðan Norðmenn hafa dregið úr framleiðslu á unnum afurðum. Í Noregi hefur umgjörð sjávarútvegs snúist fyrst og fremst um að styðja við strandbyggðir á meðan sjávarútvegur hefur verið einn mikilvægasti grunnatvinnuvegur Íslendinga og ein mikilvægasta stoð efnahagslífsins. Því er ekki um annað að ræða en að reka hann á eins hagkvæman hátt og kostur er þannig að hann skili mestum þjóðhagslegum ábata.

Forseti. Mér þykir segja sig sjálft að það mun ekki hjálpa samkeppnishæfni greinarinnar að setja á einhvers konar höft eða bönn í þessu samhengi. Stjórnvöld verða hins vegar að treysta samkeppnishæfni með því að passa upp á samkeppnishæfa skatta og gjöld. Það gerist ekki af sjálfu sér að sjávarútvegur hafi orðið slíkur jarðvegur verðmætasköpunar sem raunin er. Stjórnvöld geta til að mynda einnig gert betur í því að liðka fyrir og bæta aðgengi að fleiri mörkuðum. Því er mikilvægt að við höldum samtalinu áfram um að gera góða hluti enn betri.