153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[16:23]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Gæði eru fjölbreyttari heldur en okkur kannski grunar og mig langar til að benda á gæði sem tengjast viðskiptaháttum. Þau skipta einnig máli. Íslenskar sjávarafurðir hafa orðið fyrir ákveðnum álitshnekki, eða í rauninni viðskiptahættir, t.d. varðandi viðskiptahætti í Afríku þar sem Samherji er grunaður um að hafa stundað mútur í mörgum löndum miðað við yfirheyrslur vitna og skjöl sem hafa lekið. Það hefur tvímælalaust mjög mikil áhrif á orðspor okkar og íslensks sjávarútvegs í heildina. Það hefur ákveðin varúðaráhrif, má orða það þannig, fólk verður kannski vart um sig í viðskiptum sem tengjast þessu. Við hér á þingi, og ég tel það skipta mjög miklu máli, verðum að stíga mjög fast til jarðar til þess að passa upp á að álit á Íslandi verði ekki fyrir skaða vegna þess. Það hefur komið í ljós t.d. að bandarísk fyrirtæki eða bandarísk yfirvöld geta í rauninni lokað fyrir viðskipti íslenskra fyrirtækja sem eru grunuð um mútur eða hafa orðið sek um að hafa greitt mútufé, bara af því að múturnar voru greiddar í bandarískum dölum þrátt fyrir að engin bandarísk fyrirtæki eða yfirvöld hafi komið þar nærri. — Svo þurfum við að huga að því líka að hér hefur verið beitt veiðiaðferðum sem hafa skemmt vistkerfi hafsins í kringum landið. Það er ekki sjálfbært. Við þurfum að huga að nýsköpun, tvímælalaust. En við þurfum líka að huga að framtíðinni. Þar er framtíðartækni sem fyrr en síðar mun koma til með að skipta út í rauninni þörf okkar á að sækja út á haf (Forseti hringir.) og veiða og það mun verða kjötræktin eins og ég hef minnst á hér áður.