Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa þörfu og góðu umræðu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar þegar kemur að vinnubrögðum og umgengni um afurðina sem við höfum veitt hér í kringum landið um aldir. Það eru ekki margir áratugir síðan að vinnubrögðin voru á þann veg að fiski var landað svo lengi sem gaf á sjó. Ef vinnslan hafði ekki undan þá var einfaldlega keyrt með fiskinn út í hraun, hann geymdur þar og beðið eftir næstu brælu, þá var hægt að vinna fiskinn. Sem betur fer þá höfum við látið af þessum vinnubrögðum og umgengnin um afurðina hefur breyst mjög mikið til hins betra. Hámarksnýting á afurðinni held ég að sé óhætt að segja að sé til fyrirmyndar. Markaðsstarfið hefur í flestum tilfellum gengið með ágætum en þrátt fyrir mikla og gríðarlega samkeppni á mörkuðum erlendis er eftirspurn eftir hvítum villtum fiski til staðar og hún mun verða til staðar þrátt fyrir mikið framboð af eldisfiski sem sækir verulega á þar á mörkuðum. Vissulega er alltaf hægt að gera betur í markaðsstarfi og minna á gæði íslenska fisksins en það er dapurlegt að útgerðarmenn freistist til þess að flytja út óunninn fisk í gámum.
Virðulegi forseti. Við eigum að sameinast um það að allur fiskur sem veiddur er eða alinn innan lögsögu Íslands sé hér fullunninn til neytenda handan Atlantsála.