Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.
Frú forseti. Ég er enn að reyna að átta mig á því hvert þessi annars ágæta umræða á að leiða okkur. Það virðist vera að útlendingar vilji borga meiri pening fyrir eldislax en þorsk. Getum við gert eitthvað í því? Hugsanlega. Á æskuárum mínum vildu Íslendingar flestan annan fisk en þorsk og svo komst maður að því að þorskur væri náttúrlega besti fiskurinn. Ég veit ekki hvað þarf til, hugsanlega að auglýsa þorskinn á Instagram. En hvað er verið að leggja til hér með þessari umræðu um að það þurfi inngrip í markaðssetningu á íslenskum fiski? Svo er hitt, af því að hv. þingmaður sem stendur fyrir þessari umræðu er þingmaður Viðreisnar og sá flokkur hefur stundum hallast að frjálshyggju, þá skil ég ekki alveg hvernig frjálshyggjan á að leysa þessi mál öll. Ímyndum okkur, í framhaldi af umræðu hér um allan fisk á markað og slíkt, ef íslensk útgerðarfyrirtæki gætu ekki lengur gert ráðstafanir og áætlanir um hvenær þau sækja fiskinn og sótt hann akkúrat á þeim tíma sem hentar best og sent hann beint í vinnslu og flutt hann beint út ferskan. Hvernig myndi aukin óvissa um möguleika þessara fyrirtækja á að vinna og flytja út fiskinn bæta stöðuna hvað varðar að flytja út gæðavöru á sem hagkvæmastan hátt? Ég er ekki að gagnrýna þetta. Ég er bara að spyrja af því að ég velti þessu fyrir mér út frá þessum hugmyndum um mikið markaðsræði á þessum markaði í útgerðinni. Hvernig á þetta að ganga fyrir sig? Þetta er mikilvæg umræða og varðar eina af undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar. (Forseti hringir.) En ég myndi vilja að hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir myndi kannski í lokin útlista hvernig hún vildi sjá þróunina fyrir sér.