153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegri samkeppni og tækifæri í markaðssetningu.

[16:32]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir umræðuna. Hún hefur snert á ýmsu. Mig langar til þess að nefna nokkra punkta. Í fyrsta lagi er áskorun fyrir íslenska fiskvinnslu að keppa við ríkisstyrktar fiskvinnslur í Evrópusambandinu og víðar. Þannig geta skapast skilyrði fyrir því að erlendar vinnslur yfirbjóði innlendar á fiskmörkuðum. Þetta höfum við séð. Sú þróun sem hefur verið býsna hröð síðustu ár er að aukin tæknivæðing í innlendum vinnslum eykur samkeppnishæfni þeirra og breytir þessari stöðu.

Í öðru lagi vil ég þakka fyrir það sem hér hefur verið nefnt varðandi stöðu minni útgerða og fyrirtækja sem eru einungis að sinna vinnslu. Umræða eins og sú sem hér fer fram gefur okkur einmitt tækifæri til að ræða þessi mál vegna þess að tilhneigingin er oftar en ekki sú að við tölum fyrst og fremst um stærstu útgerðirnar eða einhverja tiltekna anga þess kerfis sem snýst um byggða- og atvinnuaðgerðir.

Sjálfbær nýting verður alltaf hornsteinn þessa kerfis og ráðgjöf verður að byggja á vísindum. Bent hefur verið á að við hugum að því stofnanirnar okkar séu burðugar og er það mjög mikilvægt. Að lokum vil ég segja, varðandi orðsporið og stemninguna í kringum íslenskan sjávarútveg, að þetta snýst um einstaka stöðu til að vinna íslenskan fisk á grundvelli sjálfbærrar þróunar og með loftslagssjónarmið að leiðarljósi. Þar þurfum við og rekstraraðilar í sjávarútvegi að gera betur að því er varðar orkuskiptin. Það getum við gert og við getum gert það hraðar. Á næstu dögum mun ég vonandi mæla fyrir þingmálum í þá veru. Annars þakka ég fyrir góða umræðu.