Staða leikskólamála.
Virðulegi forseti. Við höfum tekið þá ákvörðun að leikskólarnir okkar séu skilgreindir í lögum sem fyrsta skólastigið í skólakerfinu. Í lögum um leikskóla tölum við um menntun barna á leikskólaaldri og setjum þar fram kröfur um náms- og uppeldisumhverfi þeirra. Í frumvarpinu sem varð að núgildandi leikskólalögum segir að barnið, réttindi þess og velferð sé í fyrirrúmi í lögunum. Frumvarpið var sagt endurspegla breytta atvinnu- og samfélagshætti þar sem flestir foreldrar væru útivinnandi. Frá því að lögin tóku gildi árið 2008 hefur þróun samfélagsins haldið áfram í takt við efni frumvarpsins en hvernig hefur samfélaginu tekist að halda í við þessa þróun? Höfum við byggt upp samfélag um allt land þar sem börn eru jafn vel sett þegar kemur að menntun? Af hverju erum við annars hér í dag að ræða leikskólamálin á Alþingi? Sveitarfélögin bera jú ábyrgð á starfsemi leikskóla og á því að tryggja börnum menntun á fyrsta skólastiginu en hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sér til þess að farið sé eftir lögum um þessi mál og foreldrar krefjast þess í auknum mæli að ríkið stígi inn í þennan málaflokk þar sem sum sveitarfélög sinna honum ekki sem skyldi. Þar eru raddir foreldra reykvískra barna mjög fyrirferðarmiklar.
Virðulegur forseti. Í svari sem ég fékk nýlega frá hæstv. ráðherra kemur fram að hlutfall kennara af stöðugildum á leikskólum er langt undir kröfum laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara. Við vitum sömuleiðis að staða barna er mjög misjöfn milli sveitarfélaga þegar kemur að því að hefja menntun á fyrsta skólastiginu. Ég þekki auðvitað best til á höfuðborgarsvæðinu og þar vitum við t.d. að börn í Reykjavík hefja nám miklu seinna en börn annars staðar á svæðinu. Mér finnst mikilvægt að við fáum að heyra afstöðu hæstv. mennta- og barnamálaráðherra til þess hvort þessi misjafna staða barna og foreldra, þegar kemur að leikskólamálum, sé ásættanleg, hvort þetta misrétti standist hreinlega lög og alþjóðlegar skuldbindingar.
Virðulegi forseti. Leikskólamálin eru stærsta jafnréttismálið á forræði sveitarfélaganna og það er krafa í nútímasamfélagi að bilið verði brúað milli fæðingarorlofs og leikskóla. Ég hef þegar komið inn á það hvernig börn hér á landi sitja ekki við sama borð þegar kemur að aðgengi að menntun á fyrsta skólastiginu. En hvaða áhrif skyldi þessi misjafna staða hafa á jafnrétti? Hverjir eru það annars sem fresta því að snúa aftur á vinnumarkaðinn að loknu fæðingarorlofi ef bilið hefur ekki verið brúað? Hvaða áhrif hefur þetta óbrúaða bil í mörgum sveitarfélögum á útgjöld heimila? Eru öll heimili jafn vel í stakk búin til þess að mæta miklum kostnaði sem hlýst af því að foreldrar geta ekki snúið aftur á vinnumarkað og kostnaði af því að brúa þetta bil með kostnaðarsömum skammtímalausnum? Það væri gott að heyra afstöðu hæstv. ráðherra til þessa.
Hæstv. ráðherra er ráðherra leikskólamála en hann er líka ráðherra flokks sem sótti mjög fram í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Framsóknarflokkurinn er í meiri hluta og hefur tekist á hendur aukna ábyrgð víða um landið og tók m.a. við leikskólamálunum í Reykjavíkurborg þar sem flest börn á landinu búa. Auknu valdi fylgir aukin ábyrgð og kjósendur flokksins í ríki og borg hljóta að hafa væntingar um aukna áherslu og þunga á þennan málaflokk. Það er jákvætt að við alþingismenn eigum hér orðastað við hæstv. ráðherra í dag til að ræða þennan mikilvæga málaflokk og hvort og þá hvaða tillögur hæstv. ráðherra hefur til úrbóta á misjafnri stöðu barna þegar kemur að leikskólamálum.