153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða leikskólamála.

[16:47]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Þegar rætt er um leikskólamál þá er það yfirleitt um skort á plássum. Við höfum skapað þjóðfélag þar sem tvær fyrirvinnur þurfa að vera í 100% starfshlutfalli auk þess að taka yfirvinnu til að sjá fyrir heimilinu. Það er ekki til að standa undir einhverjum lúxus, nema kannski í undantekningartilfellum, heldur einfaldlega til að komast af. Kannski er það eitthvað sem við ættum að velta fyrir okkur. Með fullri virðingu fyrir því góða leikskólastarfi sem er víðast hvar þá getur það ekki verið gott fyrir börn að vera frá eins árs aldri á stofnun meginhluta dagsins, allt árið um kring. Við erum að tala um 8–9 tíma á dag hjá fjölmörgum krílum sem eru að stíga sín fyrstu skref út í lífið. Þessar hugleiðingar eru ekki settar fram sem gagnrýni á leikskóla og það starf sem þar er unnið. Ég er hins vegar að velta upp forgangsröðun samfélags sem hefur búið þannig um hnútana að börn eigi þess varla kost að verja tíma með foreldrum sínum á virkum dögum nema rétt fyrir svefninn þegar allir eru örþreyttir.

Lág laun og hár húsnæðiskostnaður eru stærstu vandamálin á Íslandi og það lítur því miður ekki út fyrir að ráðstöfunarfé heimilanna muni aukast á næstunni. Húsnæðiskostnaður hefur hækkað svo svakalega á síðustu mánuðum að margar ungar fjölskyldur sjá varla fram úr því. Leikskólar eru góðir en þeir eru ekki geymslustaður fyrir börn, þeir eru menntastofnanir fyrir yngstu börnin okkar og átta tímar eru gríðarlega langur skóladagur fyrir hvern sem er. Það gefur augaleið að fyrir lítil börn er hann allt of langur, alveg sama hversu vandað skólastarfið er. Flokkur fólksins hefur mælt með því að fé fylgi barni, ekki þó bara til annarra leikskóla eins og málshefjandi virðist vera að ýja að heldur líka til þeirra foreldra sem kjósa að vera heima með börnum sínum. Alveg sama hversu góða leikskóla við erum með þá eru foreldrar mikilvægustu persónurnar í lífi barna sinna og tengslamyndun við þau á fyrstu árum barnsins getur ráðið úrslitum um gengi þess og vellíðan um alla framtíð. Þurfum við ekki líka að huga að því?