153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða leikskólamála.

[16:49]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Frú forseti. Leikskólastigið er fyrsta skólastigið. Góð menntun eykur lífsgæði einstaklinga en tryggir um leið velsæld og blómlegt atvinnulíf. Við erum stolt af því á Íslandi að atvinnuþátttaka kvenna er og hefur verið hlutfallslega mjög há hérlendis, en við megum ekki gleyma því að það er að stærstum hluta vegna okkar góðu og sterku leikskóla sem á sínum tíma var tekin ákvörðun um á pólitískum vettvangi, af femínistum, að koma á fót. Dagheimili sem konur í Kvennalistanum komu á fót gerðu konum kleift að sækja vinnu á vinnumarkaði, mennta sig og taka aukinn þátt í stjórnmálum. Leikskólarnir eru samofnir baráttu kvenna fyrir jafnrétti og jöfnum tækifærum til náms og starfa. Það er pólitísk ákvörðun að setja jafnrétti í forgang. Það er pólitísk ákvörðun að leggja áherslu á leikskólann, fyrsta skólastigið. Á sama tíma og vel virðist takast til með að fjölga leikskólakennurum í námi, eins og hæstv. ráðherra benti hér á, og auka aðgengi ófaglærðra starfsmanna að námi með átaki sem farið var í af stjórnvöldum, þá blasir samt við sú staðreynd að of hægt gengur að ná því markmiði sem stjórnvöld hafa sett um að tveir þriðju af starfsmönnum leikskóla skuli vera faglært fólk með menntun á sviðinu. Þannig hefur samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar háskólamenntuðum leikskólakennurum fækkað um rúm 3% frá árinu 2017 og leikskólakennurum með framhaldsskólamenntun fækkað um rúm 25% frá árinu 2019. Sú grundvallarviðhorfsbreyting að viðurkenna leikskólann sem hið raunverulega fyrsta skólastig hefur ekki orðið sem skyldi. Það er lykilþáttur í því að tryggja stöðu leikskólakennara og stöðva flótta úr greininni að störf innan leikskólans séu metin að verðleikum og vinnuaðstæður og umhverfi séu til jafns við það sem við sjáum í grunn- og framhaldsskólum.

Að lokum vil ég segja: Takk leikskólar, takk fyrir allt ykkar ótrúlega magnaða starf.