Staða leikskólamála.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að hefja þessa mikilvægu umræðu. Á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga segir, með leyfi forseta:
„Leikskóli er fyrsta skólastigið í skólakerfinu samkvæmt lögum nr. 90/2008 um leikskóla og er ætlaður börnum undir skólaskyldualdri. Sveitarfélög bera ábyrgð á starfsemi leikskóla. Lögin kveða á um að sveitarfélög hafi forustu um að tryggja börnum leikskóladvöl og beri ábyrgð á heildarskipan skólahalds í leikskólum sveitarfélaganna. Hvert sveitarfélag skal setja sér almenna stefnu um leikskólahald í sveitarfélaginu og kynna fyrir íbúum þess.“
Það sem stendur borginni m.a. fyrir þrifum og öðrum sveitarfélögum þegar kemur að leikskólamálum er auðvitað það sem hér hefur verið margnefnt, sem er það að leikskólastigið er ekki á meðal lögbundinna verkefna sveitarfélaga. Það gerir að verkum að þegar þeim fjármunum sleppir sem sveitarfélögunum er úthlutað af hálfu ríkisins, sem sannarlega er fyrirkomulag sem mætti endurskoða, þá eru það lögbundin verkefni sem ganga fyrir. Leikskólastigið er ekki þar á meðal. Fjármögnun sveitarfélaga á verkefnum sem færð hafa verið yfir til sveitarfélaganna á síðustu árum er ófullnægjandi og kemur niður á nauðsynlegum verkefnum, svo sem leikskólaþjónustu, sem ekki eru lögbundin. Sé það vilji ríkisstjórnarinnar að skilgreina leikskólastigið sem fyrsta skólastigið er auðvitað fyrsta skrefið að tryggja fjármögnun, binda það í lög. Svo mætti blanda í þessa umræðu, sem fer kannski eilítið út fyrir efnið, stöðu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og fyrirkomulagi úthlutana úr honum. En þetta mál snýst að mörgu leyti um akkúrat þetta, fjármögnun og tekjustofna sveitarfélaganna sem er stærri umræða en svo að ég geti úttalað mig um hana hér á tveimur mínútum. Ég endurtek þakkir mínar til hv. þingmanns fyrir að hefja þessa umræðu.