Staða leikskólamála.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér stöðu leikskólamála að frumkvæði hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur. Framlagðar spurningar eru margar og mikilvægar og erfitt að gera þeim öllum skil í stuttri umræðu sem þessari. Hins vegar eru þær engu að síður þess verðar að skoðaðar séu í framhaldinu. Mig langar í minni fyrri ræðu í þessari umræðu að einblína á spurninguna sem sett var fram um hugsanlega endurskoðun á námi leikskólakennara. Með reglugerðarbreytingum hefur leikskólakennurum verið gert kleift að nýta leyfisbréf sitt á fleiri en einu skólastigi. Þá hafði lenging námsins úr þremur árum í fimm þau áhrif að fækkun varð í leikskólakennaranámi en gerði námið um leið jafngilt öðru kennaranámi. Um leið og þetta eykur sveigjanleika þeirra sem eru menntaðir leikskólakennarar til að leita eftir vinnu á öðrum skólastigum hefur þessi breyting skapað ákveðin vandamál innan leikskólanna sem glíma við verulegan mönnunarvanda. Það er eðlilegt að leikskólakennarar skoði stöðu sína og leiti sér að starfi sem hentar þeim sem best. Það hefur verið talsverður munur á aðstæðum leikskólakennara annars vegar og grunnskólakennara hins vegar, m.a. þegar horft er til vinnutíma. Mörg sveitarfélög hafa reynt að bregðast við þessu með ýmsu móti og samanburðurinn að þessu leyti er leikskólunum í óhag. Einhver sveitarfélög hafa t.d. verið að gera tilraunir með að hafa leikskólana lokaða á milli jóla og nýárs líkt og viðgengst í grunnskólanum. Það hefur hjálpað til en dugar þó ekki. Svona breytingar skapa um leið erfiðleika fyrir marga foreldra sem hafa getað treyst á opinn leikskóla fyrir börnin sín. Það er morgunljóst að mönnunarvandi leikskólanna verður ekki leystur með því að gera ekki neitt. Leikskólanámið þarf að vera jafngilt námi á öðrum skólastigum enda er leikskólinn skilgreindur sem fyrsta skólastigið.