153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða leikskólamála.

[16:56]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér fer fram. Ég ætla mér að fara inn í þessa umræðu út frá samskiptum heimilis, barns, fjölskyldu annars vegar og atvinnulífsins hins vegar. Það er auðvitað mjög sérstakt, þegar við stöndum frammi fyrir þeirri stöðu sem kristallast hvað best í stöðu mála í hér höfuðborginni, Reykjavík, þar sem ekki nema rétt 52% 12 mánaða barna eru komin með pláss, og nýjustu fréttir sem borist hafa benda til þess að enn sé að lengja í, hvað þann aldur varðar, að tryggt sé að pláss fáist. Á sama tíma ætlumst við til þess að foreldrar sinni sínum störfum. Fæðingarorlofið er, eins og við þekkjum, 12 mánuðir þar sem forsjárhyggjan er allsráðandi hvað varðar ráðstöfun réttarins. Það er í rauninni lögþvingað hvort foreldrið nýtur sex mánaða með smávægilegri heimild til framsals, eitthvað sem skiptir sáralitlu máli. Mér finnst stundum eins og skilaboð stjórnvalda í þessum efnum gangi beinlínis gegn þeim markmiðum sem stjórnvöld segjast vera að vinna að og það er í augnablikinu ekkert sem bendir til þess að staða leikskólamála hvað aðgengi barna varðar sé að batna. Í því samhengi verðum við að ræða með opnum hug, hvort eitthvað hafi misfarist þegar reglum um námskröfur grunnskólakennara var breytt á sínum tíma, hvort hluti af lausninni sé ekki að tryggja fullt framsal fæðingarorlofs á milli foreldra þannig að foreldrarnir geti ákveðið hvað er barninu fyrir bestu en það séu ekki kontóristar sem sjái um það og troði því ofan í kok foreldra þeirra ungu barna sem eiga þessi réttindi.