Staða leikskólamála.
Virðulegur forseti. Ég ætla eins og aðrir að þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu. Ég hef haldið því fram að við ræðum allt of lítið um skólamál hér í þessum sal og því fagna ég sérstaklega að við séum hér að ræða um leikskólamál. Eins og hv. þingmenn hafa komið inn á þá erum við öll sammála um að þetta sé mikilvægt skólastig sem það er svo sannarlega. Hvort sem þetta er lögbundið verkefni eða ekki þá er alveg ljóst að öll sveitarfélög reka leikskóla. Þau gera það langflest af miklu afli og miklum gæðum. Ég held að það sé algjörlega óhætt að segja að íslenskir leikskólar séu með því besta sem þekkist enda starfar þar mikið af fagfólki.
Mig langaði til að koma inn á það hér og beina spurningum til ráðherra um kröfur sem gerðar eru á mönnun inni á leikskólunum, kröfur til mönnunarinnar og til þeirrar menntunar sem þeir sem þarna starfa hafa hlotið. Sveitarfélögin hafa kallað eftir því — það er mjög erfitt að manna leikskóla og mjög erfitt að manna leikskóla með fullmenntuðum leikskólakennurum eftir að við lengdum námið og eftir að leyfisbréfið varð eitt. Ég vil velta því upp hvaða skoðun ráðherra hefur á þeim málum og jafnframt hvort við ættum kannski að horfa aðeins á uppbrot í leikskólakerfinu okkar. Þetta er svo sannarlega menntastofnun en fær kannski mikilvægara hlutverk eftir því sem líður á leikskólaaldurinn. Ég held kannski að menntunin sem slík skipti ekki öllu varðandi eins árs börn, þetta snýst fyrst og fremst um umönnun. Þá skiptir auðvitað mjög miklu máli að umönnunin sem slík sé fagleg. Þegar við erum að tala um að þetta sé mikilvægt jafnréttistæki, og við erum þannig samfélag að báðir foreldrar starfa almennt úti, þá velti ég því fyrir mér hvort það væri ekki eðlilegt að atvinnulífið kæmi inn í auknum mæli með leikskólaþjónustu, sérstaklega fyrir yngstu börnin, eins og við sjáum það til að mynda á spítölum erlendis þar sem fólk starfar á mismunandi tímum. Þá sé umönnun fyrir börnin, sem skapar líka tækifæri fyrir foreldra til að verja meiri tíma með börnunum sínum. Við vitum hvernig nútímasamfélagið virkar og nútímafjölskyldan. Það er mjög erfitt að keyra á milli staða og þessi tími sem við bjóðum upp á í leikskólum er mjög takmarkaður.