Staða leikskólamála.
Frú forseti. Hér notar hv. málshefjandi, og kannski ekki óvænt, ferðina til að hnýta aðeins í stöðuna í Reykjavík en þá er kannski rétt að halda því til haga að fyrir utan Garðabæ þá tekur Reykjavík inn yngstu börnin. Reykjavík borgar hæstu launin og Reykjavík er það sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sem hefur með trúverðugustum hætti áætlun um að fjölga plássum, brúa bilið. Kópavogsbær hefur hins vegar sagt að hann ætli ekki að fjölga sínum plássum, án þess að málshefjandi hafi séð ástæðu til að nefna það sérstaklega. En þetta er engu að síður mjög nauðsynleg umræða. Þetta er gríðarlega mikilvægt skólastig en sveitarfélög eru að sama skapi mjög ólík að stærð og gerð og í mjög mismunandi færum til að sinna þjónustunni. Þannig má t.d. velta því upp og verður að gera það hér hvernig vanfjármögnun ríkisins, þegar kemur að málaflokkum sem ríkið ber ábyrgð á en eru á hendi sveitarfélaga, getur bitnað á mikilvægri framþróun í sveitarfélögum. Það segir sig sjálft að þegar það vantar 9–13 milljarða inn í málefni fatlaðra af hálfu ríkisins þá bitnar það auðvitað bara á annarri þjónustu í sveitarfélögum og hjálpar a.m.k. ekki við rekstur leikskóla. Á meðan ríkið virðir ekki skuldbindingar sínar við sveitarfélög mun t.d. ganga miklu hægar að brúa bilið milli fæðingarorlofs og þess aldurs þegar börn fá leikskólavist, eins og hv. málshefjandi ræddi hér um. Ég held að við ættum núna í miðri fjárlagagerð að leggja til grundvallar hvernig við ætlum í rauninni að virða skuldbindingar okkar við sveitarfélögin áður en við förum kannski of hart í að segja að þau uppfylli ekki allt sem við vildum að þau gerðu. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann sé ekki sammála mér um að stórfelldar vanefndir í einstökum málaflokknum geti bitnað á öðrum málum innan sveitarfélaga.