Staða leikskólamála.
Virðulegi forseti. Á hátíðarstundum er rætt um börnin sem það dýrmætasta sem við eigum og það er eitthvað sem við getum öll verið sammála um. En hvernig sýnum við þetta verðmætamat okkar í verki? Foreldrar geta fæstir skapað sér fjárhagslegt svigrúm til að minnka við sig vinnu svo þau geti varið meiri tíma með börnum sínum og við tímum ekki að borga þeim mannsæmandi laun sem sinna þeim á leikskólum. Á meðan fólk sem sýslar með peninga og tölur fær háu launin á Íslandi fá þau sem hugsa um börnin okkar eingöngu molana af borðum þeirra, ef þá það. Þannig er forgangsröðun okkar þegar á reynir. Víðast er leikskólastarf borið uppi af ófaglærðu starfsfólki því að menntaðir leikskólakennarar fást ekki til starfa. Þetta ófaglærðra fólk á miklar þakkir skildar því að það hefur bjargað leikskólastarfi á Íslandi. Og eins og kom fram í Covid eru þau einhverjir mikilvægustu starfsmenn þjóðarinnar því að án þeirra stöðvast öll hjól þjóðfélagsins eða hökta a.m.k. alveg svakalega. Þessu áttaði Reykjavíkurborg sig á og sendi starfsfólki leikskólanna svohljóðandi kveðju: Kæra leikskólastarfsfólk. Með þessari litlu sendingu viljum við koma á framfæri þökkum til ykkar allra fyrir ómetanlegt framlag við krefjandi og flóknar aðstæður. Þið hafið sýnt mikla samstöðu, úthald og útsjónarsemi sem seint verður fullþakkað. Þakklætisvotturinn var páskaegg nr. 1.
Við skulum ekki falla í þá gryfju að vanmeta framlag þessa fólks. En hitt er svo annað mál að samkvæmt lögum eiga a.m.k. tveir þriðju starfsmanna á hverjum leikskóla að vera menntaðir leikskólakennarar, en þar er svo sannarlega pottur brotinn sem er gríðarlega alvarlegt mál. Ófaglært starfsfólk hefur gert vel en eðli málsins samkvæmt er þetta oft ungt fólk sem brúar einhver bil með vinnu á leikskóla þannig að mannaskipti eru tíð sem er alls ekki gott fyrir lítil börn sem þurfa festu og öryggi. Það eru þúsundir menntaðra leikskólakennara í öðrum störfum því að menntun þeirra færir þeim betri laun í öðrum störfum en því sem þau menntuðu sig til. Það er hægt að stofna alls kyns nefndir til að leysa umönnunarvandann á leikskólanum þegar lausnin blasir við; það þarf að hækka laun leikskólakennara og kannski líka létta á leikskólanum með því að tryggja að fé fylgi barni fyrir þá foreldra sem kjósa að vera heima með börnin.