Staða leikskólamála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að hefja þessa umræðu enda er málefnið mikilvægt. Staða leikskólamála hefur verið í umræðunni í svolítinn tíma og sætt mikilli gagnrýni. Beinist gagnrýnin m.a. að umönnunarvanda leikskóla og skorti á plássum. Vandinn felst þó ekki bara í umönnunarvandanum heldur líka að sum sveitarfélög taki feilspor þegar kemur að uppbyggingu leikskóla, þ.e. að sveitarfélög geti ekki farið eftir útboðsskilyrðum sem þau setja sjálf. Við sáum dæmi um það þegar útboð var kært á uppbyggingu leikskóla í Urriðaholti í Garðabæ í sumar sem fól í sér seinkun á öllu ferlinu og stöðva varð samningsgerð. Þegar ekki er vandað til verka í svona málum þá bitnar það á foreldrum og börnum sem hafði verið lofað leikskólaplássi og binda vonir við að barnið geti hafið skólagöngu sína sem fyrst, sem er leiðinlegt fyrir alla. Það þýðir einfaldlega ekki að tala um að skortur á leikskólakennurum sé fyrst og fremst ástæðan fyrir skorti á leikskólaplássum þegar sveitarfélög geta ekki farið eftir sínum eigin útboðsskilyrðum fyrir umfangsmikið verkefni á borð við uppbyggingu leikskóla. Vandinn er fjölþættur og ljóst að heildarsýn og heildarstefnu vantar í þessum málefnum. Það er tímabært að ríki og sveitarfélög samræmi verksvið sín, til að mynda hvað varðar að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla, og ég vona að það verði gert sem fyrst.
Ég bíð spennt að sjá hvort einhver hlutverk verði samræmd eða hvort eitthvert samtal muni eiga sér stað á milli ríkis og sveitarfélaga út af því að samráð er ekki nógu mikið og þetta er einhvern veginn allt úti um allt. Ég vona að það verði verkefni þessarar ríkisstjórnar og núverandi sveitarstjórnarfulltrúa.