153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða leikskólamála.

[17:17]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir góða og mikilvæga umræðu í þinginu í dag og hæstv. ráðherra fyrir hans innlegg og svör. Það er jákvætt að heyra metnaðinn sem hæstv. ráðherra hefur til þess að taka heildstæðar utan um þann aldurshóp sem við ræðum hér í dag. En ég hef örlitlar áhyggjur af því að heyra hann ekki kveða fastar að orði þegar kemur að úrbótum og sumpart vera að enduróma orðræðu sem ég kannast vel við sem foreldri hér í Reykjavíkurborg.

Mig langaði að nefna nokkra punkta úr umræðunni. Í fyrsta lagi hvað það er mikilvægt, af því að hæstv. ráðherra kemur inn á að það vanti upplýsingar, m.a. til þess að bera á milli svæða, að við söfnum þessum upplýsingum saman. Varðandi það að langstærstur hluti barna komist inn við tveggja ára aldur, að það sé t.d. lítill munur þegar við horfum til höfuðborgarsvæðisins — ef við horfum heildstætt á þetta eina ár sem er eftir að skyldum ríkisins lýkur þá þekkjum við það sem foreldrar ungra barna á þessu svæði að hver dagur skiptir ofboðslega miklu máli. Það að tiltaka prósentustig og horfa heildstætt til tímabilsins þykir mér ekki vera góður samanburður. Þegar ég nefndi jafnrétti í þessu samhengi þá tiltók ég það bæði varðandi jafnrétti barna og foreldra, og það kom fram í framsögu minni. Enda skiptir hvort tveggja gríðarlega miklu máli.

Hvað varðar langa leikskóladaga þá tek ég heils hugar undir það sem hefur komið fram í umræðunni. Ég hef hins vegar áhyggjur af því og mér hefur virst sem svo að þessar ákvarðanir, þegar teknar hafa verið ákvarðanir um að skera niður leikskólaþjónustu, hafi ekki verið teknar með hagsmuni barna að leiðarljósi heldur vegna hagræðingar. Ég vil því frekar horfa til aukins sveigjanleika.

Í lögum um leikskóla er falleg framtíðarsýn, fögur fyrirheit. En það þarf pólitíska forystu til að framfylgja lögunum. Sveitarfélög bera lögum samkvæmt ábyrgð á starfsemi leikskóla og að tryggja börnum leikskóladvöl. Stjórnmálamenn í öllum sveitarfélögum þurfa að ákveða að gera leikskólamál (Forseti hringir.) að forgangsmáli. Hæstv. ráðherra þarf að fylgja því eftir í málaflokknum sem hann ber ábyrgð á.