153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

Staða leikskólamála.

[17:19]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og ég ætla að reyna að koma inn á nokkur atriði hér að lokum. Ég vil byrja á því að fagna því aftur að verið sé að ræða þessi mál hér. Það er margt mjög gott unnið í málefnum barna á Íslandi. Á leikskólastiginu erum við með frábært starfsfólk, ég tek undir með þeim sem hafa komið inn á það hér, og Ísland stendur mjög framarlega. En um leið er fullt af hlutum sem við getum gert betur.

Þegar kemur að því að ræða hver stendur sig vel og hver stendur sig illa og hvernig það allt er þá held ég að allir flokkar standi sig mjög vel allt í kringum landið. Ég vil blanda mér aðeins inn í það af því að hv. þingmaður, sem hóf þessa umræðu, talaði um að það væri verið að reyna að sveigja hjá umræðu sem tengdist Reykjavík. Það er ekki svo. Ég hef fulla trú á því að núverandi meiri hluti í Reykjavík fylgi því eftir að brúa þetta bil. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) En ég var líka að varpa ljósi á þá áskorun sem er hér varðandi stöðu foreldra og varðandi jafnréttismál sem við viljum alls ekki gefa afslátt af og síðan áhyggjur sem margir hafa af stöðu barna. Þegar verið er að tala um kennaranám og verið að ræða stöðu barna — leikskólabörn eru með lengsta skóladag allra barna í skólakerfinu. Það er eitt, og ætla síðan að fara að gefa afslátt af námi fólks sem er með þessum börnum í þetta langa tíma. En við viljum ekki gefa eftir gagnvart jafnréttismálunum heldur og það er þess vegna sem við þurfum að kalla alla inn í þetta samtal. Ég fagna því hjá hv. málshefjanda og fleirum þegar hann talar um atvinnulífið, samfélagið, fæðingarorlofið, við þurfum að taka alla anga inn í þetta samtal. Það er áhyggjuefni að samkvæmt nýlegri skýrslu, sem unnin var í tengslum við geðrækt í skólum, eru einungis 66% starfsmanna leikskóla sem telja sig geta byggt upp einstaklingsbundin samskipti við börn á hverjum degi. Og taktu svo yngsta aldursflokkinn þarna. En við viljum alls ekki gefa eftir gagnvart því að þjónusta foreldra í þessu landi (Forseti hringir.) og hvað varðar stöðu jafnréttismála. En það sem við þurfum að gera er, sem er hárrétt, (Forseti hringir.) að taka utan um þetta með markvissri stefnumótun. (Forseti hringir.) Það erum við að gera hér í dag og það er hægt að þakka þingmanninum fyrir af því að pólitíkin hér þarf að hafa skoðun á fyrstu árunum í lífi barnsins (Forseti hringir.) en láta það ekki eingöngu í hendur sveitarfélaganna allt í kringum landið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)