153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[17:50]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna á þessum breytingartillögum. Eins og segir í greinargerð þá felst þjóðaröryggisstefnan í virkri utanríkisstefnu, almannaöryggi og varnarsamstarfi. Í tillögunum er einnig fjallað um mikilvægi innviða samfélagsins og í d-lið er fjallað um vernd og órofa virkni mikilvægra innviða og styrkingu áfallaþols samfélagsins gagnvart hvers kyns ógnum. Síðan er haldið áfram að tala um þætti sem lúta að almannaöryggi. Ég get ekki séð það öðruvísi en svo að árás á íslenska innviði eða árás á sæstrengi til landsins sé varnarmál. Er forsætisráðherra sammála því og er hann sammála því að þetta myndi falla undir varnarsamninginn við Bandaríkin og falla undir aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu? Og það sé raunverulega NATO og Bandaríkjamenn sem sjá um varnir Íslands hvað varðar mögulegar árásir, ógnanir við sæstrengi til landsins, fjarskiptatengingar til landsins og jafnvel föst fjarskipti innan lands?