þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu hér. Norðurlöndin eru nánustu samstarfsríki Íslands og fylkja sér saman um norræn gildi lýðræðis og frelsis sem jafnframt eru grunngildi Atlantshafsbandalagsins. Mín fyrirspurn til forsætisráðherra snýr að fundi forsætisráðherra í Ósló í Noregi 15. ágúst síðastliðinn þar sem þessi mál voru rædd. Frá þeim fundi kom fram ákveðin ályktun sem snýr raunverulega að dýpkun samstarfs Norðurlandaþjóðanna í öryggis- og varnarmálum og hefur mikil áhrif á svæðið; Eystrasaltið, norðurhluta Atlantshafsbandalagsins og síðan náttúrlega Norður-Atlantshafið. Mín fyrirspurn er: Hvernig lítur hæstv. forsætisráðherra á þetta varðandi framhaldið og hvernig mun þetta samstarf fara fram á næstunni sem tengist öryggis- og varnarmálum nú þegar staðan hefur breyst í grundvallaratriðum meðal norrænu ríkjanna?