þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að fara svolítið nánar inn á það sem hann nefndi í svari sínu og það er þessi einstaka sérstaða Íslands í alþjóðasamfélaginu, að vera herlaus þjóð og hafa alltaf verið það. Við þurfum að gæta að orðræðu okkar út á við. Það sem við höfum er nákvæmlega þetta, það sem við höfum fram að færa er að geta stigið inn í það á trúverðugan hátt að boða frið og afvopnun. Ég ætla sérstaklega í lokin að minnast á friðlýsingu fyrir kjarnavopnum. Það er eitthvað sem við verðum að standa fast með og ég fagnaði því mjög í svari hæstv. utanríkisráðherra á dögunum að hún teldi að landið væri nú þegar friðlýst.