þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Frú forseti. Ég tel t.d. að loftrýmisgæslan sem er viðhöfð hér á landi hafi gefið góða raun, í henni er ákveðinn fælingarmáttur. Það mætti að sjálfsögðu skoða hvort það væri nauðsynlegt að auka hana með einhverjum hætti og að Ísland komi þá inn í það. Það væri ákveðið endurmat eins og ég nefndi áðan. Síðan er afar mikilvægt að við stöndum við skuldbindingar okkar þegar kemur að varnarsamstarfinu og samstarfinu við NATO. Það er t.d. viðhaldið á mannvirkjunum og að við séum í stakk búin til að taka á móti þeim varnarbúnaði sem til þarf ef hér skapast hættuástand. Ég held að við höfum ekki staðið okkur nægilega vel í því að halda þessum varnarmannvirkjum við. Ef það er mat þeirra sem best þekkja til, sjálfstætt mat NATO og Bandaríkjamanna, að það þurfi t.d. að bæta hafnaraðstöðu í Helguvík þá tel ég að við eigum bara að greiða fyrir því. (Forseti hringir.) Og það á ekki að vera neitt sérstakt deiluefni, það er bara einn þáttur sem við erum skuldbundin til að gera samkvæmt samningnum.