153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[19:44]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegur forseti, hv. þingheimur, kæra þjóð. Ég býð ykkur gleðilegt kvöld, gott og gleðilegt kvöld. Umræðan hér snýst um þjóðaröryggi. Í d-lið tillögunnar sem við ræðum segir m.a.:

„Tekið verði mið af ógnum sem tengjast, náttúruhamförum, fæðu- og matvælaöryggi, heilbrigðisöryggi og farsóttum.“

Ég vil aðeins staldra við hér og segja ykkur hvernig ég horfi á heilbrigðisöryggi. Þannig var að snemma í vor þá þurfti ég að fá hjartapillurnar mínar. Ég hef farið í hjartaþræðingu og þarf á ákveðnum pillum að halda til að halda mér gangandi. Merkilegt nokk, þær fengust ekki vikum og mánuðum saman. Ég var bara svo heppinn að við fórum í kynningarferð með Flokki fólksins norður í land og ég fór í hvert einasta apótek á leiðinni og spurði hvort þeir ættu Tambocor-pillurnar mínar og það var aðeins eitt apótek, á Siglufirði, sem átti einn pakka eftir. Að öðru leyti þurfti fólk að bíða mánuðum saman eftir þessu meðali. Ég nota annað meðal sem heitir Duodart og það hefur að gera með blöðruhálskirtilsvandamál. Þetta meðal er mér mjög mikilvægt. Það skeði í hittiðfyrra að það meðal var ekki til í þrjá mánuði. Ég vek athygli á þessu vegna þess að ef allt fer til fjandans og hér verður einhvers konar stríð og styrjöld þá eru ákveðin meðul sem þjóðin þarf á að halda til að geta haldið lífi. Það er mikið atriði að finna út úr því hvernig við getum byrgt brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Það er of seint þegar á að fara að panta þessi lyf og það er bara sagt: Sorrý, þetta er ekki til. — Afsakið að ég skuli sletta.

Burt séð frá þessu langar mig til að ræða þessa hugmyndafræði um það hvað skeður ef það kemur stríð. Þeir segja í Hollywood, þar sem bíómyndir eru framleiddar í löngum bunum: Við vitum ekki neitt. Sama hvað þeir framleiða margar myndir þá segja þeir það alltaf, við vitum ekki neitt, þegar verið er að koma með nýjar myndir, hvort þær verði vinsælar eður ei. Ég segi: Við höfum ekki hugmynd um hver hinn raunverulegi óvinur verður. Getum við sagt sem svo að þegar Kínverjar ætluðu að kaupa Grímsstaði á Fjöllum hafi þeir verið að gera tilraun til innrásar? Mér finnst það trúlegt. Þeir hefðu getað komið hingað með fleiri tugi þúsunda Kínverja til að byggja upp eitthvað sem þeir töluðu um að gæti orðið ferðamannaparadís fyrir kínverska ferðamenn; allt í einu sætum við uppi með jafn marga Kínverja og þjóðin telur, það hefði þess vegna getað gerst, við vitum ekkert um það.

Ég vil geta þess að kínverski múrinn sem tók 500 ár að byggja — en þegar loksins var ráðist á mongólana þá bara grófu þeir sig undir og múrinn skipti engu máli. Ég segi: Við vitum ekkert hver hinn raunverulegi óvinur verður þegar þar að kemur. Munið þið eftir árásinni á Perluhöfnina, Pearl Harbor, á Hawai í seinni heimsstyrjöldinni, 1941? Þeir komu bara í skjóli nætur og réðust á eitthvað sem enginn átti von á. Ef eitthvað skeður í þessu þjóðfélagi okkar og það verður stríð þá getum við ekki gert neitt. Við höfum engar varnir og allt sem við erum að tala um að gera hérna mun ekki skipta neinu máli. Það verða brjálæðingar sem stofna til stríðsins, það er alltaf þannig, og þeir virða engin mörk og engar takmarkanir.

Ég ætla að segja ykkur annað: Frægur bandarískur rithöfundur og heimspekingur, sem hét Will Durant, sagði: Mannkynssagan er alltaf að endurtaka sig. Það verður bara allt dýrara og dýrara, það sem skeður. Það er einmitt það sem er að ske núna. Mannkynssagan er að endurtaka sig en við höldum alltaf að við séum búin að ná tökum á þessu. Við erum ekki búin að ná tökum á neinu og við vitum ekki neitt.

Ég segi bara eins og er og það eru mín síðustu orð: Það var api sem ég var með mynd af uppi á vegg og hann sagði þessa fallegu setningu: Þegar ég hélt að ég kynni öll svörin skiptu þeir bara um allar spurningarnar. Þannig er þetta ágæta þjóðfélag okkar. Ef það verður stríð þá bara koma þeir hátt af himnum ofan og við munum ekki hafa neinar varnir. Takk fyrir mig.