153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[20:01]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir fína ræðu. Ég veit að það er margt annað sem hann hefði gjarnan viljað koma inn á og mér fannst ákveðinn partur af öryggis- og varnarmálahlutanum vera eftir. En það er eins og við segjum, þjóðaröryggisstefnan tekur ekki bara yfir þann hluta heldur er á þessum breiða grunni sem ég vona að við séum sammála um, allt frá áherslu á innviðaöryggi yfir í loftslagsmálin, yfir í netvarnir og aðrar fjölþátta ógnir. Það breytir ekki því að við megum heldur ekki minnka fókusinn á hin hefðbundnu öryggis- og varnarmál og ég vil taka undir með hv. þingmanni þegar hann segir að efla þurfi sérstaklega þekkingu á öryggis- og varnarmálum. Ég held að það skipti okkur gríðarlega miklu máli að það sé gert.

Ég vil spyrja hv. þingmann tveggja spurninga. Annars vegar þegar við skoðum framlag Íslendinga sem hlutfall af þjóðarframleiðslu miðað við aðrar þjóðir til varnar- og öryggismála: Telur hann að það megi gera betur? Telur hann að það þurfi að gera betur á því sviði varðandi það að festa framlög Íslands til öryggis- og varnarmála með ákveðnari hætti?

Síðan er hin spurningin, sem ég hef verið að spyrja og komið á framfæri við aðra þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hvort þeir séu sammála Birni Bjarnasyni um að stíga þurfi enn ákveðnar og fastar til jarðar en gert er með þessari tillögu forsætisráðherra og ríkisstjórnar um þjóðaröryggisstefnu, að ekki sé nægilegt tillit tekið til þeirra gríðarlega breyttu aðstæðna sem við stöndum frammi fyrir, ógnir eru með allt öðrum hætti núna en fyrir 24. febrúar, og hvort hann sé einfaldlega sammála því að við í utanríkismálanefnd þurfum einmitt að stíga svolítið ákveðnar til jarðar en gert er með tillögunni sjálfri.