153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[20:03]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er þannig að ef við værum að borga 2% af okkar landsframleiðslu til varnarmála þjóðarinnar væru það væntanlega milli 60 og 70 milljarðar eins og það er. Það hefur verið tekið tillit til þess í starfi Atlantshafsbandalagsins að Ísland er lítið land og staðsetning okkar og geta er bara metin þannig að það er ekki verið að ýta á eftir okkur varðandi þennan þátt. Eins og ég kom inn á áðan: Það er borgaraleg þjónusta eða borgaraleg störf sem við gætum helst sinnt, þar sem Íslendingar gætu kannski komið inn með öflugri hætti. Við erum að gera ágætismót í Eystrasaltsríkjunum með fjölmiðlafulltrúum og höfum gert ýmislegt í gegnum tíðina. Ég held að við ættum að skoða þetta með leit og björgun, hvort við gætum raunverulega gert meira tengt því á Norður-Atlantshafi, komið sterkar inn með þeim hætti, þá með tíð og tíma og vonandi með öflugri innkomu þar og að meira fjármagni sé varið til þeirra mála, þá mögulega sérstaklega í samstarfi við, eins og ég benti á, Dani, sem hafa verið í stóru hlutverki í kringum landið og í nágrenni við það í gegnum árin. Ég held að það væri eitthvað sem við þyrftum að skoða betur.

Varðandi það að stíga fastar inn í: Ég er bara hlynntur því, það er mín persónulega skoðun, að þessi mál séu skoðuð alvarlega og ég fagna því að málin séu rædd. En það þurfti eiginlega svona hræðilegt stríð til þess að skilningur á þessum málum ykist eins og það er í dag. Ég tek það kannski fyrir í síðara andsvari hvað mér finnst eðlilegt að við myndum gera.