153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[20:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Svo maður sletti, frú forseti: Á ensku er talað um „Transatlantic bond“ sem er þá innan Atlantshafsbandalagsins þar sem verið er að tengja Ameríku og Evrópu saman. Innan bandalagsins gegnir Ísland gríðarlega stóru og mikilvægu hlutverki í Norður-Atlantshafinu, hvort sem það hefur komið fram hér eða ekki, í tengslum við kafbátaleitina eða loftrýmisgæslu og leit og björgun sem var raunverulega, getum við sagt, öflugri hér þegar varnarliðið var í landinu. Það voru fimm þyrlur sem það var með, auk þess var svo Landhelgisgæslan íslenska. Gæslan hefur staðið sig gríðarlega vel í sínu hlutverki. Það þarf einnig að tryggja skipaleiðir yfir Atlantshafið sem eru bara hérna rétt sunnan við Ísland. Það þarf að hafa í huga, þegar verið er að vinna að vörnum og öryggismálum Atlantshafsbandalagsins og Íslands, að þetta er stórt og mikilvægt hlutverk og við erum bara stödd þar sem við erum stödd í þessari „geo-pólitík“. Og ég held að við höfum bara verið að gera fína hluti, núna síðast í Keflavík varðandi uppbygginguna á þessari birgðageymslu til að geyma búnað til að geta byggt upp flugvöll með skömmum hætti, það er fyrst og fremst í þeirri birgðageymslu sem verið er að byggja núna. En ég hef raunverulega viljað að við myndum skoða það alvarlega, og það er mín persónulega skoðun, hvernig Norðmenn standa að málum varðandi samvinnu við Bandaríkin, að vera með þetta á þessum basa, sex mánaða „rotation“ eða skipti á herafla eins og nú hafa verið í Noregi í tvö, þrjú, fjögur ár. Og það er bara ákveðinn veruleiki sem er á bak við kafbátaleitina í Keflavík undanfarin ár sem ýtir undir að það þurfi að skoða þessa umræðu og ræða þetta opinberlega. (Forseti hringir.) Við eigum ekkert að vera að fela okkur í einhverri umræðu. (Forseti hringir.) Þetta er mál sem þarf að ræða. Það er bara mín persónulega skoðun á þessu máli.