153. löggjafarþing — 38. fundur, 28. nóv. 2022.
þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
487. mál
Forseti vill minna hv. þingmenn á að þingmálið er íslenska. Þingmenn eru því beðnir um að finna íslensk orð eða orðasambönd yfir þá hugsun sem þeir vilja koma á framfæri. Auðvitað kemur fyrir að menn eru að vísa til sérheita á enskri tungu og annað kann að eiga við í því sambandi en íslenskan á orð yfir allt eða orðasambönd sem eiga að duga til að koma hugsun hv. þingmanna á framfæri.