153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[20:40]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og taka undir með forseta því að ég hef tekið eftir þeirri tilhneigingu hér í þingsal að hv. þingmenn þýði ágæt íslensk orð sem þeir nota í ræðum sínum yfir á ensku til skýringar. Ég hvet alla hv. þingmenn til að treysta móðurmálinu betur. Við getum sagt að það sé líka fullveldismál, og þjóðaröryggi og fullveldi eru jú nátengd. Því finnst mér ágætt að við nefnum aðeins tungumálið í þessari ágætu umræðu sem ég vil fyrst og fremst nota tækifærið til að þakka fyrir.

Út af ræðu hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar sem hér talaði síðast á undan mér, þar sem hann nefndi mikilvægi þess að gera áætlanir, þá held ég að ný Covid-skýrsla sem gefin var út um viðbrögð stjórnvalda við heimsfaraldri geti um margt reynst okkur lærdómsrík þegar tekist er á við slíkan faraldur. Þar er sérstaklega rætt um að þær viðbragðsáætlanir sem voru til hafi gagnast, sérstaklega er rætt um að þær breytingar sem hafa verið gerðar á stjórnkerfinu þegar kemur að samhæfingu hafi gagnast. Mér fannst þetta lærdómsríkt þó að vissulega getum við gert betur og ýmsar ábendingar eru um það í skýrslunni, t.d. hvað varðar samræmt viðbragð ríkis og sveitarfélaga í svona aðstæðum. Þá held ég að líka sé mikilvægt að muna að okkur hefur miðað aðeins áfram og ég held að starfsemi þjóðaröryggisráðs sé í raun einn liður í því.

Mig langar að nefna örfá atriði sem hv. þingmenn komu að í sínum ræðum. Eðlilega er ákveðinn skoðanamunur milli hv. þingmanna en heilt yfir tel ég nú að ályktunin sem ég dreg af þessum umræðum sé sú sama og við drógum í þjóðaröryggisráði, þ.e. að stefnan hafi gefist vel og þessi breiða nálgun sé mikilvæg. Mig langar að nefna, af því að einhverjir hv. þingmenn ræddu þessa auknu áherslu á lýðræði, að ég tel vera mikilvægt að við horfum á þá staðreynd að fremur hefur orðið bakslag en framþróun í lýðræði í heiminum á þeim fimm árum sem liðin eru síðan gildandi stefna var sett. Heldur hefur dregið úr lýðræði innan ríkja, lýðræðisríki eru jafnvel færri en áður töldust vera og bent hefur verið á, af þeim alþjóðlegu aðilum sem reyna að hafa einhvers konar yfirsýn yfir slíkar upplýsingar, að við séum að sjá ákveðna afturför. Stundum er hún líka tengd hinni nýju tækni, ekki vegna þess að við höfum ekki alltaf haft skautaða umræðu — hún hefur alltaf verið til staðar — en hin nýja tækni gerir það að verkum að skautuð umræða ferðast hundrað- eða þúsundfalt hraðar en hún gerði áður þegar þessi mál voru til umræðu. Mér finnst þetta mikilvægur punktur og mikilvægt að koma honum á framfæri hér vegna þeirra hv. þingmanna sem nefndu sérstaklega þessa áherslu á lýðræði.

Ég vil síðan aðeins koma að því sem hér var nefnt af nokkrum hv. þingmönnum, sem varðar mat á stöðunni. Ég tek undir það. Þjóðaröryggisráð hefur gengið frá mati á ástandi og horfum í varnarmálum þjóðarinnar. Það verður væntanlega lagt fram á þinginu. Ég hafði vonast til að það yrði í þessari viku, a.m.k. er það farið frá þjóðaröryggisráði og mér. Það hefði verið hægt að vinna það hraðar en ástæðan fyrir því að það tók lengri tíma en ella er að farið var algerlega heildstætt yfir fyrra mat frá árinu 2021, en alþingismenn eiga von á þessu í vikunni.

Mig langar líka að nefna neyðarbirgðirnar, sem ýmsir hv. þingmenn hafa nefnt. Unnið er samkvæmt áætlun í þeim efnum sem þjóðaröryggisráð gerði þegar þessi skýrsla kom til okkar og var unnin fyrir okkur. Einstök ráðuneyti hafa þegar sett mál á þingmálaskrá til að mæta þeim kröfum sem settar eru fram í skýrslunni, önnur eru enn að undirbúa sín mál. Ég vil taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa bent á mikilvægi þessa máls. Ég held að skýrslan sé mjög góður grunnur fyrir aðgerðir og þjóðaröryggisráð mun fylgja eftir þeim aðgerðum sem þar eru lagðar til. Hið sama erum við að gera varðandi innlenda greiðslumiðlun. Seðlabanki Íslands sendi þjóðaröryggisráði erindi um þau mál og frá því það erindi barst höfum við þrisvar fengið Seðlabankann á fund til að ræða stöðu innlendrar greiðslumiðlunar sem við metum sem svo að sé lykilatriði til að tryggja fjármálaöryggi, þ.e. að til staðar séu innviðir til að tryggja innlenda greiðslumiðlun. Öll þessi mál komu upp hjá hv. þingmönnum og ég vildi aðeins nýta tækifærið til að bregðast við þeim.

Vegna þess sem hér kom fram varðandi síðustu breytinguna, þar sem áður var talað um öryggis- og varnarmál en nú er talað um þjóðaröryggismál, þá langar mig að nefna að það orðalag byggir á matsskýrslunni frá árinu 2021 þar sem rætt var um að æskilegt væri að þjóðaröryggisráð mæti ástand og horfur í þjóðaröryggismálum á heildstæðan hátt og horfi í þeim efnum til allra þátta sem þjóðaröryggisstefnan tekur til. Eins og ég sagði hér, og kannski er einhver meiningarmunur um það í þingsal, þá er grunnuppleggið á bak við stefnuna eins og hún var samþykkt á sínum tíma að allir þættir hennar séu jafn mikilvægir, hver og einn standi í raun og veru fyrir sig. Þar af leiðandi er það skylda okkar að horfa á stefnuna út frá þessari heildstæðu sýn en ekki þröngt. Það er ástæðan fyrir þessari orðalagsbreytingu sem ég er nú búin að kafa betur ofan í af því að spurning kom fram um hana.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að lengja þessa umræðu, virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir. Ég þykist vita að einhverjar spurningar komi í andsvörum en vil bara ítreka að ég teldi mjög jákvætt ef hv. utanríkismálanefnd, sem fær málið til umfjöllunar, myndi forgangsraða þessu máli í sinni umfjöllun. Ég held að mikilvægt sé fyrir heildarhagsmuni samfélagsins að við látum þetta mál ekki liggja lengi opið. Út frá umræðum í dag leyfi ég mér að draga þá ályktun, þótt auðvitað sé einhver skoðanamunur, að almennt séu hv. þingmenn sáttir við grundvallarhugmyndafræði þjóðaröryggisstefnunnar og því vona ég að það geti orðið til þess að greiða þessu máli leið hjá hv. utanríkismálanefnd.