153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[21:00]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég get auðvitað engu haldið fram um það hvort hv. þingmaður hafi heyrt eitthvað um þetta eða ekki þó að ég hafi verið að reyna að gera það úr sæti. Hins vegar hef ég greint frá því úr ræðustól Alþingis að þessi endurskoðun stæði yfir. Síðan erum við kannski svo mikið farin að tala við okkur sjálf í þjóðaröryggisráði að við gleymum að tala við aðra og það er þá aftur áminning, sem ég heyri frá báðum hv. þingmönnum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Njáli Trausta Friðbertssyni, um að það skipti máli að við skerpum betur á samtalinu. Það kom raunar skýrt fram á þeim fundi sem ég átti með hv. utanríkismálanefnd að mikil ósk væri um aukið samtal þjóðaröryggisráðs og utanríkismálanefndar Alþingis sem ég tel að sé bara jákvætt. Eins var líka sérstaklega rætt um samtal framtíðarnefndar Alþingis og þjóðaröryggisráðs. Sameiginleg vinnustofa þessara tveggja aðila er í undirbúningi núna af því að mjög margt af því sem þessar nefndir og ráð fást við varðar einmitt ógnir framtíðar. En ég held að við getum í raun og veru gert það sama með samtali við utanríkismálanefnd, skerpt á því samtali, og ég held að það sé gott fyrir okkur öll.