153. löggjafarþing — 39. fundur,  29. nóv. 2022.

veiðigjald.

490. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er verið að hækka veiðigjöldin á næsta ári. Um það held ég að við getum verið sammála. Við erum að hækka þau um líklega 2,5 milljarða á næsta ári en í heildarsamhenginu, þ.e. ef við horfum til þessara fimm ára sem hér er verið að tala um, þá er ekki verið að gera það. Ég held að ég hafi verið alveg skýr hvað það varðar og get svo sem ekkert, held ég, verið mikið skýrari en þetta. Ég tel að þingheimur þurfi ekkert að velkjast í vafa um það. Ég ætla ekkert að fara út í einhverjar blaðafyrirsagnir einhvers staðar, mér finnst það ekki vera mitt hlutverk hér. En ég ítreka: Það er verið að hækka veiðigjöldin á næsta ári, en það er sannarlega tilfærsla á milli ára.