veiðigjald.
Virðulegi forseti. Það þarf kannski ekki að fara fleiri orðum um þetta núna. Ég held að ég hafi svarað þessu ágætlega. Ég ber ekki ábyrgð á því hvernig miðlar slá upp fréttum eða hvernig það er fram sett, það er ekki Vinstri grænna að eiga við það eða annarra. En fyrst og fremst vil ég bara segja að þetta er auðvitað aukin innkoma í ríkiskassann á næsta ári sem hefði ekki orðið nema út af þessari breytingu. Þetta var ekki fyrirséð og er auðvitað galli að við höfum ekki getað gert betur og ég tek alveg undir að það hefði kannski mátt rýna málið þannig að það hefði ekki verið lagt fram með þessum hætti. En það er nú einu sinni þannig að við sjáum ekki allt fyrir og allar afleiðingar og ég held ekkert endilega að það sé handvömm eða eitthvað slíkt. Fólk er ekki fullkomið. (IngS: Fúsk.) Nei, ég tel ekki að þetta hafi verið fúsk, hv. þingmaður, ekki frekar en margt annað sem okkur hefur yfirsést. Stundum hefur það gerst vegna þess að málshraðinn er of mikill. En það er ekki alltaf þannig, stundum bara áttum við okkur ekki á hvernig allt regluverk og lagaverk virkar alveg í gegn, því miður.