fjáraukalög 2022.
Forseti. Já, ég held að þessi afgangur, miðað við þessa upphæð núna, sé nokkurn veginn verðleiðréttur miðað við afganginn eins og hann var til að byrja með. Það er kannski búin að vera ákveðin stígandi í því og ég beini því til ríkisstjórnarinnar að gera ráð fyrir þessu í næstu fjármálaáætlun. Hitt sem mig langar til að spyrja hv. þingmann um er lífeyrisaukinn. Til þess að leggja fram tillögur í fjáraukalagafrumvarpi þarf að vera tilefni til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum. Mig langar bara til að spyrja hv. þingmann: Hvenær förum við að fara eftir lögum um opinber fjármál? Það hefur komið vel fram með þennan lífeyrisauka að það er ekki lagaskylda að koma með þessa greiðslu þannig að það er ekkert óhjákvæmilegt við þá greiðslu. Það þarf að uppfylla öll þessi skilyrði, ekki bara eitt af þeim. Það á við um velflest sem er í fjáraukanum, það uppfyllir ekki öll skilyrðin; tímabundin, ófyrirséð og óhjákvæmileg. Hvenær eigum við að fara að fara eftir lögum um opinber fjármál hvað þetta varðar?