fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú bara að byrja á að mótmæla því að ég sé eitthvað viðkvæmur. Ég get verið viðkvæmur á mörgum sviðum en ekki þessu. Ég ætla ekkert að segja annað en að ég tek undir þessi orð hv. þingmanns um lyfjakostnaðinn. Við rekjum það mjög rækilega í okkar nefndaráliti að þessi áætlanagerð hljóti að vera gölluð þegar slík frávik eru. Ég þori nánast að fullyrða að í okkar áliti fyrir fjárlög næsta árs munum við einnig taka utan um þennan þátt, að áætlanagerð varðandi lyfjakostnað sé með einhverjum hætti gölluð og síðan utanumhald um málaflokkinn miðað við þær framúrkeyrslur sem eru raungerðar hér í þeim tillögum sem við ræðum núna fyrir 2. umr. fjárlaga. Þar er reyndar um að ræða talsverðar viðbætur. Það er þannig, hv. þingmaður og virðulegur forseti, að ég man eftir umræðu um lyfjakostnað á þeim árum sem ég hef setið í fjárlaganefnd. Við höfum náð utan um lyfjakostnað og áætlanagerð hér á árum áður en nú í kjölfar Covid-faraldurs og fleira (Forseti hringir.) er líka bara fullt af hlutum á lofti sem við höfum ekkert endilega getað séð fyrir. Ég vil líka gefa alveg skilning á því.